Chiagrautur með Chai kókosrjóma

Sykur er ávanabindandi og skaðlegur fyrir skammtíma og langtíma heilsu okkar, því er full ástæða til þess að hefja árið með 14 daga hvíld frá honum.

Mér datt mér í hug að deila með þér uppskrift úr sykurlausri áskorun Lifðu til fulls, sem ég stend fyrir, svo þú sannfærist nú alveg um það að sykurlaus fæða sé bæði girnileg og bragðgóð!

Uppskriftin sem ég deili með þér í dag er í algjöru uppáhaldi. Ein besta leiðin til þess að temja sykurlöngun á hollari hátt er að bæta við sætleika frá náttúrunnar hendi í mataræðið! Þegar ég fór í hráfæðiskokkanámið í LA kynntist ég Chai kryddi og hefur það orðið að algjöru eftirlæti hjá mér til að gefa sætleika án sykurs í uppskriftir!

Chai krydd Chai kryddin í uppskriftinni (ólíkt chai te) er krydd sem þú trúlega átt í kryddskápnum á þessum tíma árs, en þau eru mikið notuð í piparkökubaksturinn. Chai kryddin eru blanda af kanil, kardimommum, negul, engifer, piparkornum og vanillu. Kryddjurtir eins og þessar geta seðjað sykurlöngun sem og hlýja kroppinn.

Chia fræ Ég er ofboðslega hrifin af chia fræjum enda hjálpa til við að stjórna kolvetnaupptöku líkamans, sem jafnar blóðsykur og getur dragið úr sykurlöngun. Einnig eru fræin einstaklega rík af próteini og omega 3 fitusýrum frá plönturíkinu!

Kókosmjólk Kókosmjólk bætir meltingu og getur dregið úr bólgum í meltingarfærum. Kókosmjólkin er einnig sérlega fiturík, en að neyta hollrar fitu er eitt af mínum ráðum við að temja sykurlöngun yfir daginn. Uppáhalds kókosmjólkin mín er frá vörumerkinu Coop sem fæst í Nettó í hvítum dósum.

CHIAGRAUTUR MEÐ HIMNESKUM CHAI KÓKOSRJÓMA

chai

CHAI KÓKOSRJÓMI
1 dós (eða 1 1/2 bolli) kókosmjólk
1/4 tsk kanil
1/4 tsk malaðar kardimommur
1/4 tsk engiferduft
1/2 tsk rósapipar, malaður
1/2 tsk vanilluduft eða dropar
4-6 dropar stevia
salt
1 þroskaður banani, stappaður

CHIAGRAUTUR MEÐ BANANA
1/3 bolli chia fræ
1 dós (eða 1 1/2 bolli) kókosmjólk
1/2 bolli vatn (eða meira, val)
1 þroskaður banani
1/2 tsk vanilludropar
2-4 dropar stevia

SÚKKULAÐIKÚLUR:
1 bolli kínóa pops
4 msk kókosolía, brædd
1 msk kakó
6 dropar stevia (venjuleg eða með súkkulaðibragði)
1 tsk kókospálmanektar (val)
1 tsk pollen (val)
vanilla

Til skreytingar
Súkkulaðikúlur
Chai kryddaðar pecanhnetur frá sykurlausri áskorun
Jarðaber
Banani

Setjið öll hráefni í chai rjómann og vinnið í blandara þar til silkimjúkt. Geymið til hliðar í kæli.

Útbúið Chiagraut með því að vinna öll hráefni nema chia fræin í blandara. Hrærið varlega chia fræin samanvið án þess að vinna of mikið í blandaranum og geymið í kæli í 30 mín (eða lengur) svo úr verði þykkur chiagraut.

Fyrir súkkulaðikúlur
Hitið ofninn á 170 gráður. Hrærið öllu vel saman í skál. Smakkið og bætið við hráum kókospálmanektar ef þið viljið hafa blönduna sætari, annars má sleppa. Bakið í 10-15 mín, þar til stökkt, eða setjið í þurrkuofn í 12 klst.

Sameinið chiagrautin með því að hella chai rjómanum í tvö glös c.a 1/3 glasins, þar ofaná bananastappa eða banana sneiðar, fyllið glasið svo með chia- og bananagrautnum og skreytið með súkkulaðikúlum, Chai kryddaðuðum pecanhnetur og jarðaberjum. Njótið strax!

chia myndir

HOLLRÁÐ
Útbúið chiagrautin og geymið í kæli í allt að 3-5 dögum, sleppið þá ferskri bananastöppu og jarðaberjum. Grauturinn gefur fljótlega orku og dásamlegur einn og sér með chai rjómanum.

Fáðu meiri orku og bætta líðan með því að taka ókeypis sykurlausri áskorun hér!