Ertu tengd/ur árstíðunum?

Langar þig í feitan mat, olíu, smjör, súpu, kryddaða rétti, heitt te, kaffi með ghee, egg, heitar krásir, viltu komast í heitt bað, gufu, hafa sætan bita við höndina? Láttu það eftir þér því líklega ertu tengd/ur náttúrunni og haustið að læðast inn í líf þitt.

Haustið er tími umbreytinga. Það sést allt í kringum okkur. Tré og runnar afklæðast og búa sig undir veturinn. Jörðin tekur litaskiptum. Brúnir tónar taka við af litagleði sumarsins. Hitastig fellur og vindar blása. Haustið er allt í senn þurrt, hrjúft, hvikult, kalt, fíngert og tært. Allir þessir eiginleikar flokkast undir vata samkvæmt hinu fornu en sígildu Ayurveda lífsvísindum, sem við höfum margsinnis skrifað um (sjá: hér og ayurveda 101)
 Og þar sem við erum fátt annað en hluti náttúrunnar rís nú vata orkan innra með okkur. Til að geta notið lífsins, haldið lífsorku og lifað með náttúrunni þurfum við að mæta þessum umbreytingum og koma böndum vataorkuna.

Af hverju að taka tillit til árstíðar?

Hornsteinn góðrar heilsu samkvæmt Ayurveda, er að taka tillit til hverrar árstíðar eins og hún birtist í okkar nærumhverfi. Það að aðlaga sig árstíðinni færir okkur jafnvægi. Haustið eins og það er hér á landi er sígild vata árstíð. Og án þess að vera endilega meðvituð um það langar okkur í heitar súpur og heimabökuð næringarrík brauð fremur en köld salöt, hráfæði og hrökkbrauð og rótargrænmetið kallar á okkur. Fæða sem er of köld og þurr heillar okkur ekki lengur enda nær hún ekki að næra okkur.

Að mæta haustinu með reisn!

Það sem Ayurveda leggur upp með er að fæðan sem við borðum sé gagnstæð ríkjandi frumefnum náttúrunnar hverju sinni (sem aftur nú er köld, létt, þurr, vindasöm og óútreiknanleg=vata). Við drögum úr áhrifum hennar í lífi okkar ef við borðum það sem er heitt, olíukennt og nærandi. Þar sem haustið er líka einhæft og einmannalegt á margan hátt ættum við að nota það til að styrkja sambönd okkar og finna stöðugleika og jarðtengingu. Rækta fjölskyldu og vini.

Meltingin þarf að vera heit og rök

Fæðan sem þú velur nú er öflug leið til að sefa vata frumefnin innra með okkur. Þung, fiturík, heit og nærandi fæða með góðum próteinum og vönduðum fitusýrum færa okkur lífsorkuna. Vittu til. Í raun er mest um vert að halda meltingunni rakri og hafa fast land undir fótum. Náttúruleg sæta hentar líka þessum árstíma. Ekki neita þér um hana. Súrt, salt, sætt og ólíukennt eru boðorð haustsins. Svona á heildina litið, hafðu matinn þinn maukkenndan og mjúkan og helltu vel af gheei (smjörolíu) eða annarri olíu yfir hann.

Í morgunmat er mælt með hafra- og/eða kínóagraut. Hafðu grænmetið þitt gufusoðið, og ef þú kýst súpu er gott ráða að bæta í hana kínóa eða heilum hrísgrjónum. Ef þú borðar egg, þá er nú besti árstíminn til að borða mikið af þeim.

Mjólkurmatur, hnetur og fræ henta einnig ágætlega. Í raun er haustið ekki tíminn til að borða það sem er beiskt, rammt og það sem er herpandi/samandragandi ætti að vera í hófi. Því er mælt með að þú forðist grænmeti eins spergilkál og spírur, laufmikið grænmeti, ferskar baunir, kex, hirsi, þurrkaða ávexti og poppkorn. Ekki þó örvænta með morgunþeytinginn, því ef þú notar t.d. engifer, cayenne pipar, kanil eða eitthvað af góðum sterkum kryddum með og bætir í hann olíu mun hann sannarlega ná að næra líkama þinn og anda.

Haustið er tími hreinsunnar. Ekki föstu!

Eitt af einkennum þessa tímabils er að margra langa að borða meira en venjulega. Það stafar mjög líklega af því að það sem þú borðar hæfir ekki árstímanum. Hitt er líka að haustið er frábær tími fyrir einhæfa fæðu sem er hreinsandi. En aftur komum við að því að umfram allt verður sú fæða að vinna gegn haust frumefnunum og búa yfir góðri næringu og lífsorku. Annars er líklegt að þú springir á limminu og borðir yfir þig. Það er engu að síður mikilvægt að benda á það að þótt gott sé að borða hreinsandi fæðu á haustin eru þau alls ekki rétti tíminn fyrir safaföstur. Vorið er tími safaföstunnar.

Fæða sem mætir haustorkunni

Bestu haustávextirnir fyrir vataárstíðina eru epli, avocado, sítrónur og súraldin, bananar, döðlur, fíkjur, greip, vínber, mangó, appelsínur, sveskjur og rúsínur (ef þú ert með sveskjur og rúsínur láttu þær liggja í bleyti)

Besta grænmetið fyrir haustið eru gulrótur, rófur, chillí, hvítlaukur, laukur, grasker, sætar kartöflur og kúrbítur.

Besta kornið er kínóa, heilhveiti, hafrar, brún hrísgrjón, basmati og amarath.

Ólíurnar sem við mælum með, bæði til inntöku og á kroppinn, eru ghee, möndluolía, ólífuolía, hnetuolía og sesamolía.

Besta sætan á vatatímum er “jarðarsætan”, þ.e. hunang, mable, molassi og hrásykur.

Það er þó einkum eitt sem á aldrei betur við en nú á haustin en það eru meira og minna öll bragðmiklu kryddin.

Svo þarf vart að taka það fram að ljúft heitt bað og það að bera á sig mikið af góðum olíum á eftir, á sérstaklega vel við haustin. Og ef þið getið, endilega drífið ykkur í gott nudd. Og svo má benda á að eitt af öflugustu ráðum Ayurveda fyrir haustið að fara að sofa fyrir kl. 10 á kvöldin.

Bestu kjarnaolíurnar fyrir meiri lífsorku á haustin eru vetiver, patchouli, salvía, ylang ylang, nerolí, sæt appelsína og sítrusolíur. Þetta eru allt kjarnaolíur sem gefa okkur jarðtengingu og lífsorku (fást allar í Systrasamlaginu).

Fyrir utan allar góðu olíurnar sem við ættum að neyta nú má benda á tvö vítamín sem eru sérlega vænleg á haustin. Það er C-vítamín sem vinnur gegn sýkingum og orkuleysi og með ónæmiskerfinu. Svo segir það sig sjálft að sem aldrei fyrr ættum við nú að taka inn D-vítamín í stórum skömmtum eftir sólarleysi sumarsins og K-vítamín með, sem hjálpar okkur að vinna enn betur úr D-vítamíninu og koma því á rétta staði í líkamanum.

Og alls ekki gleyma að fá þér ½ sítrónu í volgt vatn á hverjum einasta morgni. Það á sjaldan betur við en nú!

Ps: Við systur bjóðum nú upp á heitar súpur frá mánudegi til fimmtudags í Systrasamlaginu, úr lífrænu árstíðarbundnu hráefni og Sandholtssúrdeigsbrauð með.

Tögg úr greininni
, , ,