Ilmandi og bragðgóð mynta

MYNTA ER EKKI BARA MYNTA

Það eru til margar mismunandi myntutegundir: piparmynta, eplamynta, grænmynta, ananasmynta, basílíkumynta, jarðaberjamynta, hrokkinmynta, vatnamynta svo nokkrar séu nefndar.

Þetta eru nöfnin sem við mannfólkið nefnum þessar plöntur en á ekki að skiljast þannig að jarðaberjaminta sé blanda af jarðaberi og mintu eða að hún hafi orðið til við klónun myntu og jarðabers. Þetta er einfaldlega mynta sem hefur jarðberja lykt.

Það er þannig með myntur að það eru til þónokkrar tegundir af þeim og ansi mörg afbrigði vegna þess að myntur eru mjög „lauslátar“ plöntur sem mynda auðveldlega ný afbrigði. Þannig stunda mennirnir líka kynbætur á myntum og fá þá mismunadi bragð og eiginleika fram.

 

ÝMSAR MYNTUTEGUNDIR

Að þekkja mismunandi myntur getur verið ansi flókið, jafnvel fyrir grasafræðinga. Ein leiðin til vita hvort myntan er sú sem þú vilt rækta eða borða er að smakka á henni.

Myntur blómstra bláum, fjólubláum, bleikum og hvítum blómum en sjást sjaldan í blóma. Blöðin geta verið ljósgræn, dökkgræn, hrukkótt, ljósköntuð, oddmjó og bugðótt. Myntur eru einnig með dökkum brúnrauðleitum eða grænum stöngli.

Myntur eiga auðvelt með að frjóvgast með myntum af annarri tegund en ef það gerist er ekki víst að fræin verði frjó.

Piparmynta (Mentha piperita) og grænmynta (Mentha spicata) eru algengastar. Það eru mörg afbrigði komin út af þeim.

Vatnamynta er villt og vex á Íslandi. Hún er mjög sjaldgæf og vex við hverasvæði á Vestfjörðum. Þegar hveragufan leggst yfir hana ilmar svæðið. Það er líklegt að ræktunarfólk hafi borið hana til landsins fyrir friðun hverasvæðanna.

NÝTING MYNTUNNAR

Myntur eru notaðar á margvíslegan hátt, þær eru kryddjurtir, lækningarjurtir og matjurtir. Þær eru notaðar í drykki, ilmvötn, snyrtivörur, sælgæti, tannkrem og í tóbak.

Lækningareiginleikar mynturnar felast í að hún hjálpar til við meltinguna, er góð við höfuðverk t.d. vegna sýkingar í ennis- og kinnholum og svo eru hún auðvitað notuð í tannkrem og munnskol.

Mynta er tilvalin í te enda mikið notuð sem slík í arabískum löndum.

Mynta er notuð í sósur eins og Tzatziki og í kryddsmjör. Einnig til að marínera kjöt og fisk. Hún er tilvalin sem krydd í meðlæti eins og hrísgrjón, kuskus, kartöflur, salat og baunamauk ( t.d grænar baunir).

Myntan er einnig fín í eftirrétti eins og piparmintuís og súkkulaðikonfekt.

RÆKTUN MYNTUNNAR

Fyrir byrjendur í ræktun er öruggasta leiðin að kaupa sér plöntu og setja hana annað hvort í beð eða ker. Vökva hana reglulega og klippa.

Myntan lifir bæði í sól og skugga en vex betur í sól. Flestar myntur mynda jarðrenglur, sem eru eins og stöngull ofan í jörðinni sem vex langsum ofarlega í moldinni. Með þessum stöngli skríður myntan áfram og stækkar stundum hratt og breiðir mikið úr sér. Þess vegna er ekki sniðugt að planta myntu við hliðina á uppáhalds plöntunni þinni því hún gæti kæft hana. Ef myntan dreifir sér of mikið er best að rífa upp renglurnar og slíta af.

Það er hægt að fjölga myntu með afleggjurum (plöntubút með rót) eða taka stilk af og setja í vasa með vatni og bíða þar til að rætur koma á stilkinn og planta honum ofan í mold í potti.

Eins og aðrar kryddjurtir hefur mynta gott að því að vera notuð og klippt reglulega þar sem ný og ný skot myndast við klippingu. Þegar eða ef myntan blómstar er hún líklega orðin alltof sterk fyrir flesta að nota.

UPPSKRIFTIR MEÐ MYNTU

Hér eru nokkrar ólíkar uppskriftir sem gefa hugmynd um hvernig hægt er að nýta myntuna í mat og drykki.

Jómfrúar Mojoito
½ lime
1 msk sykur eða hrásykur
4 myntublöð (piparminta)
¼ lítri sódavatn

Setjið lime bátana í stórt glas ásamt sykrinum og pressið allan safn úr með pinna eða skeið. Hrærið vel í þar til að sykurinn er uppleystur í safanum. Bætið svo myntunni við og pressið hana aðeins. Hellið svo sódavatninu yfir.

Jógurtsósan Tzatziki
250 gr. grísk jógúrt eða skyr
1 búnt grænmynta eða 20–40 laufblöð
¼ gúrka
2–3 hvítlauksrif
Salt og pipar eftir smekk

Saxið myntuna smátt, rifið gúrku og hvítlauksrif niður. Hrærið öllu saman

Gulrætur með myntu
– Meðlæti á grillið
10 gulrætur hreinsaðar og skornar í jafnstóra bita
1 msk smjör
1 tsk eplaedik
1 búnt mynta (basilmynta, hrokkinmynta, grænmynta), söxuð gróft
Salt og pipar

Allt sett inn í álpappírs böggull og grillað í 10–15 mín. Snúið einu sinni

Tögg úr greininni
, , , , , ,