Raw lakkrís karamella

Stundum þarf maður nauðsynlega að eiga eitthvað sætt í frystinum. Þessi karamella er súper einföld og súper bragðgóð. Hún er líka margfalt hollari en flestar karamellur eða annað sem inniheldur lakkrís.

Hráefni:

  • Tæpir tveir bollar döðlur
  • 2 tsk af lakkrísduft (eða meira – fer eftir því hvað þið viljið mikið lakkrísbragð)
  • Smá sjávarsalt

Aðferð:

  1. Setjið döðlurnar í matvinnsluvél ásamt lakkrísduftinu og sjávarsaltinu.
  2. Blandið öllu vel saman eða þar til allt er orðið að kekkjalausri ljósbrúnni klessu 🙂
  3. Setjið bökunarpappír á skurðbretti.
  4. Setjið deigið á bökunarpappírinn og fletjið úr með sleikju. Athugið að deigið er MJÖG klístrað svo að þolinmæði er nauðsynleg við þessa iðju.
  5. Þegar þið eruð búin að jafna úr deiginu þannig að það er nokkuð jafnt að þykkt, takið þá hníf og gerið rendur í deigið. Þetta er gert svo að það sé auðveldara að skera/slíta sér bita þegar karamellan er tilbúin.
  6. Setjið inn í frysti í klukkutíma eða svo. Þá er karamellan tilbúin.

files (1)

ATH. #1 Ég notaði döðlur frá Sólgæti. Þær eru mjúkar og góðar. Ef döðlurnar eru ekki nógu mjúkar, þá er gott ráð að láta þær liggja í heitu vatni í smá stund (10 mín sirka) áður en þið notið þær.

ATH. #2 Ég notaði lakkrístduftið frá Johan Bülow en það er alveg hreint lakkrísduft (enginn sykur eða annað í því) og alveg meiriháttar gott. Lakkrísduftið fæst m.a. í Motivo á Selfossi og Epal í Reykjavík.

ATH. #3 Varúð! Þessar karamellur eru sjúklega góðar! Einu sinni smakkað, þið getið ekki hætt 🙂

 

Tögg úr greininni
, , , , ,

Skildu eftir svar

Netfang þitt verður ekki birt.