Svuntan veitt í fyrsta sinn

Dagný, Guðbjörg, Dominique og Elizabeth

Nýverið var fagnað í Mathöllinni á Hlemmi útgáfu annars tölublaðs árlega matartímaritsins okkar, FÆÐA/FOOD sem við hjá Í boði náttúrunnar gefum út. Á staðnum voru flestir þeir sem að blaðinu koma, ljósmyndarar, pennar og matarstílistar auk fagfólks úr matargeiranum og matgæðingar.

Í veislunni voru í fyrsta sinn veitt heiðursverðlaunin – SVUNTAN 2017, en tilgangur verðlaunana er að heiðra manneskju sem hefur haft mikil áhrif á varðveislu íslenskrar matarmenningar og hvatt til aukinnar sjálfbærni í matarframleiðslu. Verðlaunin voru veitt af eiganda Í boði náttúrunnar, Guðbjörgu Gissurardóttir , og þau gefin gestaritstjóra blaðsins í þetta sinn; Dominique Plédel Jónsson. Hún er stofnandi Slow Food samtaka Íslands sem hefur unnið ötult starf fyrir íslenska matarmenningu. Í ræðunni var sagt að Dominique ætti að standa fyrir hugtakið matgæðingur í íslenskri orðabók og henni þakkað fyrir það mikilvæga starf sem hún hefur sinnt; en hún er einnig stofnmeðlimur Samtaka lífrænna neytenda, hefur skrifað um mat og vín um árabil, verið í stjórn neytendasamtakana tengt matarframleiðslu, starfrækt vínskóla og opnað augu margra hvað varðar staðbundið hráefni og varðveislu matarmenningar. Verðlaunagripurinn var vegleg farandssvunta, merkt tímaritinu og verðlaunahafanum, en verðlaunin verða framvegis veitt árlega.

Tímaritið sjálft var einnig miðpunktur veislunnar og gestirnir gátu ekki hamið sig um að fletta þessu veglega 140 síðnar sérriti um mat. FÆÐA/FOOD – A little taste of Iceland, er framsækið tímarit um mat og matarmenningu Íslands sem kemur út árlega sem hluti af tímaritinu Í boði náttúrunnar og er bæði á íslensku og ensku. Það fjallar um mat frá ýmsum sjónarhornum; varpað er ljósi á áhugaverðar sögur úr matarmenningu okkar, gert spennandi tilraunir með mat, skoðað vannýtt hráefni, fjallað um ýmsar nýjungar og varðveitingu hefða, svo eitthvað sé nefnt.

Tímaritið fæst nú í öllum helstu bókabúðum og sérverslunum ásamt því að fást í NY, London, Amsterdam, Berlín og Stokkhólmi. Blaðið hefur vakið verðskuldaða athygli út fyrir landsteinanna og hefur fangað athygli erlendra fjölmiðla sem fjalla um tímarita útgáfur.

Hér fylgja skemmtilegar myndir úr veislunni og afhendingu SVUNTUNNAR 2017

Skildu eftir svar

Netfang þitt verður ekki birt.