Húðin í andlitinu þornar hjá mörgum á veturna sem getur leitt til ýmissa húðvandamála. Þessi heimagerði maski er einfaldur og inniheldur matvöru sem nærir, hreinsar og mýkir húðina.
AVÓKADÓ. Þessi ávöxtur er frábær fyrir húðina þar sem hann er fullur af A vítamíni sem nærir og mýkir húðina.
HUNANG. Gefur húðinni fallegan ljóma og er einnig nærandi og mýkjandi. Hunang sótthreinsar einnig vel og opnar svitaholurnar. Vissulega dálítið klístrað en það sakar ekki!
GRÍSK JÓGÚRT. Hér er smá bónus fyrir þá sem eru með húðvandamál eða fá auðveldlega bólur. Ef þú ert með viðkvæma húð sem fer auðveldlega í “uppnám” er sniðugt að prufa hvort að grísk jógurt geti ekki hjálpað. Hún hefur þann eiginleika að róa húðina, inniheldur góðar bakteríur og mikið af zink sem hjálpar húðinni að berjast við bólurnar.
ANDLITSMASKI FYRIR ÞURRA HÚÐ
1/2 tilbúin lárpera/avókadó
2 tsk. Lífrænt hunang
1 tsk. Grísk jógurt
Blandaðu innihaldinu saman þar til þú ert með mjúka blöndu. Ef þú ætlar ekki að nota maskann strax þá er gott að setja nokkra sítrónudropa í blönduna til þess að lárperan verði ekki brún. Byrjaðu á að þrífa á þér andlitið og þurrka. Settu maskann svo jafnt yfir andlitið og hálsinn, ekki of nálægt augunum. Leyfðu maskanum að sitja í að minnsta kosti 15 mínútur og þrífðu hann svo af með volgu vatni.
Þennan maska má nota 2-3 í viku
1 athugasemd