Covid-19 hefur valdið breytingum, óvissu og óöryggi á mörgum sviðum en líka skapað tækifæri og bjartsýni og ekki síst gert okkur grein fyrir því hvað er mikilvægast í þessu lífi, heilsan okkar og okkar nánustu!
Útgáfan Í boði náttúrunnar er 10 ára í ár og við ætlum að horfa fram á við og fagna lífinu, heilsunni og náttúrunni með þessum glæsilega viðburði þar sem einvalalið fyrirlesara kemur saman og deilir ómetanlegri þekkingu og reynslu og minnir okkur á hvað við getum gert til að viðhalda og bæta heilsu okkar og umhverfi.
Við vonum að þú nýtir þér þetta tækifæri, kaupir aðgang að helgarveislu með 20 fyrirlestrum á netinu og nærir þig og þína – heima í stofu! Viðburðurinn verður í beinni útsendingu á netinu 31 okt. – 1 nóv. auk tveggja vikna endurspilunar á aðeins 5.500 kr. (3.500 kr. ef áskrifandi)