Þegar ég kom heim um daginn var ísskápurinn frekar tómur. Ég tók út allt það grænmeti sem ég átti, fann poka af linsubaunum í skúffunni og tuttugu mínútum seinna hafði ég útbúið æðislegan og næringaríkan linsubaunarétt.
LINSUBAUNARÉTTUR 1 lítil sæt kartafla 2 gulir laukar 4 gulrætur 1 msk rifið engifer pressaður hvítlauksgeiri 1,5 bolli linsubaunir 1 líter grænmetissoð. 1 tsk túrmerik 2 tsk garam masala Salt og pipar eftir smekk.
1. Ég byrjaði á því að skera niður grænmetið og setja í pottinn ásamt örlitu vatni og leyfa grænmetinu að mýkjast aðeins í nokkrar mínútur. Ef þið viljið steikja það uppúr olíu er það ekkert mál, ég reyni bara að nota olíu sem minnst.
2. Á meðan grænmetið var að hitna aðeins skolaði ég linsubaunirnar og leyfði þeim að liggja í bleyti í smá stund.
3. Eftir nokkrar mínútur bætti ég linsubaununum, grænmetissoðinu (ég sýð yfirleitt vatn í hraðsuðukatli og blanda grænmetiskrafti frá Sollu útí), engiferinu, hvítlauknum og kryddunum útí og leyfði þessu að malla í sirka tuttugu mínútur.
Ef ykkur finnst ekki nóg krydd þá er ekkert mál að bæta því útí. Betra að byrja á því að setja of lítið en of mikið.