Hvernig höldum við í heilbrigða og vel nærða húð með náttúrulegum leiðum? Hvaða einföldu aðferðir getum við notað í förðun sem gera gæfumuninn?
Tímaritið Lifum betur ásamt náttúrulega húð- og förðunarmerkinu Dr. Hauschka bjóða upp á þetta skemmtilega örnámskeið fyrir konur á öllum aldri.
Eygló Ólöf Birgisdóttir förðunarfræðingur verður með sýnikennslu og fræðir þátttakendur um það helsta sem þarf að hafa í huga fyrir hversdags- og kvöldförðun.
Una Ólafsdóttir fer yfir góðar venjur og húðrútínur enda er heilbrigð húð grunnurinn að fallegri húð.
Dr. Hauschka gjafapoki verður fyrir 20 fyrstu sem bóka sig á viðburðinn og allir áskrifendur Lifum betur fá óvæntan glaðning.
Í boði verða einnig hágæða áfengislaus eða áfengislítil vín frá Cin Cin… þar sem flestir eru jú á bíl 🙂 Frábær viðburður fyrir vinkonur og konur sem vilja gefa sjálfum sér tíma og næra sig að utan sem innan.
-Hugað verður vel að sóttvörnum og fjarlægðartakmörkunum-
HVENÆR: Þriðjudaginn 25.maí, kl. 19.30 – 21.00 HVAR: Í Elliðavatnsbæ í Heiðmörk