Um daginn heimsótti móðir mín mig og kenndi mér að baka þetta ljúffenga brauð sem er glúteinlaust og alveg svakalega næringarríkt. Það er fáránlega gott með hummus, smá dijon sinnepi og ábyggilega mjög gott með smjöri. Það sem það hefur framyfir poppkex og flest keypt glúteinlaust brauð er að með hverri sneið innbyrðir maður heilan helling af næringarefnum og góðri fitu.
UPPSKRIFT:
1 dl möndlumjöl
1 dl sesammjöl
2 dl hörfræ
2 dl sólblómafræ
1 dl sesamfræ
1 dl graskersfræ
1 dl FiberHusk
2 ½ tsk salt
2 dl gulrætur
5 egg
1 tsk vínsteinslyftiduft
½ tsk matarsódi
¾ dl olía
½ dl vatn
AÐFERÐ:
Blandaðu öllu saman í skál, settu blönduna í brauðform (með bökunarpappír) og bakaðu við 160° í klukkutíma. Voila!
Verði þér að góðu!