Í TAKT VIÐ NÁTTÚRUNA

Markmiðið okkar er að finna og miðla góðum sögum og hugmyndum sem hvetja okkur til að lifa betur – í takt við náttúruna. Í boði náttúrunnar er útgáfa með hugsjón og skilgreinir sig sem „hæga“ útgáfu og hefur vaxið og dafnað „lífrænt“ síðan 2010. Við gefum út tímaritið, Lifum betur – í boði náttúrunnar og sérritið Fæða|Food ásamt því að halda úti þessum tiltekna vefmiðli, icelandicfood.is, lifumbetur.is, og graenatorgid.is. Við framleiðum umhverfisvænar vörur sem við seljum og sendum til áskrifenda okkar, t.d. handteiknað dagatal og náttúrukort. Einnig gefum við út sérsniðnar handbækur, app og kort undir merkinu HandPicked Iceland þar sem við handveljum upplifanir í okkar anda fyrir íslenska og erlenda ferðalanga.

Um í boði náttúrunnar

Við gefum náttúrunni til baka með því að planta einu tré á ári fyrir hvern áskrifenda á fallegu svæði í Heiðmörk, þar sem skrifstofan okkar er staðsett.

 

EITT BLAÐ Í EINU

Útgáfu ævintýrið byrjaði haustið 2009 þegar við hjónin, Guðbjörg Gissurardóttir hönnuður og Jón Árnason hugmyndasmiður, byrjuðum með útvarpsþátt á RÚV sem við kölluðum, Í boði náttúrunnar. Þátturinn var í spilun hjá RÚV í þrjú sumur og var um matjurtarækt og sjálfbæran lífstíl, sem reyndist þakklátt efni í miðri kreppu. Árið 2010 leit svo fyrsta eintakið af tímaritinu Í boði náttúrunnar dagsins ljós. Tímaritið inniheldur öll okkar helstu áhugamál, sem lúta að grænum lífstíl, með virðingu fyrir okkar einstöku náttúru að leiðarljósi. Við erum partur af náttúrunni og við nálgumst efnið út frá því hvernig við nýtum náttúruna, verndum hana og njótum, um leið og við hugum að okkar heilsu, næringu og andlegri líðan. Vefsíðan okkar, ibn.is, fór í loftið í febrúar 2014. Með henni getum við veitt enn frekari innblástur og miðlað efni sem við teljum skipta máli og er mikilvægur hlekkur í þeirri hugafarsbreytingu sem er að eiga sér stað varðandi umhverfismál og náttúrulegar leiðir að andlegri og líkamlegri heilsu. Við viljum að Í boði náttúrunnar taki virkan þátt í þeirri mikilvægu vitundarvakningu sem tengist umhverfismálum og betri lífsgæðum, og þannig stuðla að jákvæðum áhrifum á menn og náttúru. 

Um okkur

Guðbörg Gissurardóttir eigandi Í boði náttúrunnar fékk tilnefningu til fjölmiðlaverðlauna Umhverfisráðuneytisins árið 2013. 

 

STARFSFÓLK 

Guðbjörg Gissurardóttir, MA í Communication Design frá Pratt Institute í New York. Stofnandi, ritstýra, listrænn stjórnandi og auglýsingastjóri. gg@ibn.is
Jón Árnason, stofnandi, ljósmyndari í hjáverkum o.fl. tilfallandi. jonsi@ennemm.is
Bergdís Sigurðardóttir, grafísk hönnun, umbrot og textaskrif í hjáverkum o.fl. tilfallandi. bergdis@ibn.is
Dóróthea Lórenzdóttir, bókari. dorothea@ibn.is
Anna Helgadóttir, prófarkalesari.
Einnig starfa fyrir ÍBN sjálfstætt starfandi blaðamenn, ljósmyndarar og annað hæfileikaríkt fólk.
STARFSNÁM Í BOÐI fyrir nema í fjölmiðlun, hönnun, viðskiptafræði, ferðamálafræðum o.fl.