Ef það er eitthvað sem við eigum flest öll sameiginlegt er að við gerum óraunhæfar kröfur á okkur sjálf. Mig langar til þess að minna þig á litlu sigrana sem eiga sér stað á hverjum einasta degi og að yfir heildina litið ertu á góðri leið með að tækla lífið eins og það kemur. Mikilvægt er að staldra við, skoða hvar við erum stödd og sjá breytingarnar sem hafa orðið á lífinu til hins betra. Hér fylgja 25 áminningar um að þú ert að lifa nokkuð góðu lífi og hafðu í huga að vera stolt/stoltur af sjálfri/um þér fyrir litlu hlutina sem þú tekur ef til vill sem sjálfsögðum hlut.
- Samskipti þín og sambönd við aðra eru laus við alla dramatík.
- Þú átt kannski minni peninga á milli handanna en áður en lífið þitt er mun ánægjulegra og einfaldara.
- Þú hræðist ekki að biðja um aðstoð og stuðning frá öðrum þegar þú þarft á því að halda.
- Dvalarstaður þinn er nærandi og þér líður vel heima hjá þér.
- Þú hefur hækkað kröfur þínar um gæði samskipta og lífsins.
- Þú sleppir auðveldlega tökunum á fólki sem lætur þér líða illa.
- Þú átt augnablik þar sem þú kannt virkilega að meta manneskjuna sem þú sérð í speglinum.
- Þú ert í stöðugri vinnu að losna við þinn innri dómara og ert meðvitað að temja þér jákvæðari hugsanir.
- Reynslan hefur kennt þér að þau mistök sem þú gerir og þau áföll sem þú verður fyrir eiga þátt í því að gera þig að sterkari og þroskaðari einstakling.
- Þú hefur stuðningsnet af fólki sem kann að meta þig og myndi gera hvað sem er fyrir þig.
- Þú færð reglulega að heyra frá fjölskyldu, vinum og/eða maka hversu mikið þau elska þig.
- Þú hefur sætt þig við það sem þú færð ekki breytt og breytt því sem þú getur ekki sætt þig við.
- Þú ert lausnamiðaður einstaklingur sem kvartar sjaldan.
- Þú tekur foreldrum þínum eins og þeir eru og kennir þeim ekki um hvernig lífið þitt hefur spilast út. Þú tekur fulla ábyrgð á lífi þínu sem fullorðin einstaklingur og skilur að þau gerðu sitt besta.
- Álit annarra skiptir þig litlu máli.
- Þú samgleðst þínum fyrrverandi mökum þegar þeir halda áfram með lífið sitt.
- Þú getur auðveldlega samgleðst yfir velgengni annarra.
- Þú leyfir þér að fara í gegnum allar þær tilfinningar sem þú finnur fyrir og þú átt auðvelt með að deila þeim með öðrum.
- Þú hefur fundið þínar ástríður og lætur drauma þína rætast.
- Þú getur tekið við hrósi frá öðrum án þess að véfengja það eða ofmetast. Þú veist einfaldlega hver þú ert.
- Þú finnur fyrir tilhlökkun fyrir því sem framundan er.
- Þú hefur sett þér raunhæf markmið sem hafa ræst.
- Þú finnur fyrir samkennd með öðru fólki.
- Atvinna þín skiptir þig virkilegu máli.
- Þú getur elskað aðra af meiri dýpt en áður og hefur opnað fyrir því að taka á móti ást til baka.