Chili ræktun frá fræi

Nú er sá árstími runninn upp þar sem gott er að hefjast handa við að sá fyrir plöntum í inniræktun, t.d. sumarblómum, tómötum og chili. Það þarf að byrja núna svo þær nái að gefa af sér blóm eða ávöxt áður en kuldinn og haustið kemur. Það er svo gott að hlakka til þess að grænu spírunar komi upp úr moldinni núna þegar ekkert annað minnir á vorið. Að borða chili, með meðfylgjandi áhrifum á líkamann, er upplifun út af fyrir sig sem svo vel er lýst hér í grein sem birtist áður á ibn.is: https://ibn.is/chili-er-drottning-eldhuskryddanna/

Enn meiri gleði og upplifun er að borða chili sem maður hefur ræktað sjálf(ur).

Það eru til fleiri en 3000 mismunandi chilitegundir og hver tegund hefur sína eiginleika og bragð.  Styrkur (m.a. bragðstyrkur) þeirra er mældur Scoville sem er frá 0 og upp í 2.000.000 stiga sem sterkasta chilið er. Venjuleg paprika hefur 0 stig. Þegar chili með styrk 1.500.000 er borðaður þá, svitnar maður, finnur fyrir verulegum sársauka og hjartsláttur eykst. Þar fyrir utan þá hefur chili mismunandi lit, stærð, lögun, lengd, fjölda aldina sem það framleiðir og kuldaþol, svo eitthvað er nefnt. Þau geta einnig verið, svört, fjólublá, gul, rauð, appelsínugul, græn og hvít á lit. Chiliávextirnir geta orðið allt að 30 cm langir og sumar plönturnar geta framleitt allt að hundrað chili aldin!

Munið að styrkurinn er oft í fræunum.

Leiðbeiningar um ræktun frá fræi

  1. Kauptu/finndu til fræ, sáðmold og potta
  2. Settu mold í potta og vökvaðu en ekki setja áburð fyrr en plantan er orðin aðeins stærri. Fræin spíra ekki eða illa ef moldin er of áburðarmikil.
  3. Settu fræin niður ½-1 cm ofan í moldina. 2-5 fræ í pott.
  4. Haltu moldinni rakri þar til plantan spírar sem er eftir 5-12 daga, en getur tekið allt að  5 vikur. Best er að geyma á sólríkum stað en fræin þurfa hita til að spíra en ekki ljós, yfir 21 C°. Þegar plantan er orðin stærri og fer að vaxa, þarf hún dagsljós í að minnsta kosti 12 tíma á sólahring.
  5. Passaðu plöntuna vel þar til hún fer að blómstra hvítum litlum blómum.
  6. Klipptu fyrstu 7 blómin af til að örva aldinmyndun. Þannig fást nefnilega miklu fleiri chili sem virkilega borgar sig.
  7. Umpottaðu plöntuna í stærri pott eftir því sem hún stækkar og alveg sérstaklega ef það spírar fleiri en eitt fræ í hverjum potti. Sumar plöntur gætu orðið það stórar í lokin að þær þurfi 10 lítra pott.
  8. Til að plöntunni líði sem best og myndi mörg chili þarf hún að fá:
  • Næringu reglulega en ekki of mikla, eða of sterkan áburð. Molta hentar best.
  • Nóg vatn en ekki of mikið þar sem það þarf líka loft við ræturnar.Til að finna út hvort maður hefur ofvökvað er hægt að kreista moldina og ef vatn kemur úr moldinni er plantan ofvökvuð.
  • Svo þarf hita og sól. Ef það er of kalt detta blómin af áður en þau ná að mynda chilialdinið.
  • Hristið plöntuna reglulega svo að hún sjálf frjóvgi sig (þar sem það er oft lítið um skordýr inni við til sjá um þetta verkefni).
  1. Það tekur 1-2 mánuði fyrir plötuna að mynda fullþroskaða chili.

GANGI YKKUR VEL!

Tögg úr greininni
, , , , , ,

Skildu eftir svar

Netfang þitt verður ekki birt.