Einfaldar og fljótlegar grænkálsvefjur

Einfalt, hreint og fljótlegt er það sem ég elska í matargerð, því verð ég að deila uppskriftinni að þessum grænkálsvefjum með þér!

Þetta eru eflaust fljótlegustu og bragðbestu grænkálsvefjur sem ég hef gert, enda hef ég gert þær óteljandi oft. Þær taka innan við tvær mínútur að setja saman og gefa góða fyllingu sem endist fram eftir degi.

Það sem er enn betra er þær hjálpa til við að slá á sykurþörfina og jafna blóðsykur.

IMG_1477

Grænkál

Ég borða oftast grænkál daglega enda er það næringarríkast af öllu græna grænmetinu. Það hefur til dæmis tíu sinnum meira næringargildi en iceberg kál. (Þið getið lesið meira um það hér og  hér ) Grænkál mætti því kalla algjöra ofurfæðu, enda er það ríkt af kalki, magnesíum, andoxunarefnum, trefjum (sem bæta meltinguna) ásamt B6 og járni.

Grænkál er einnig talin ein besta uppspretta K vítamíns (sem gegnir stóru hlutverki í storknun blóðs), er sérlega próteinríkt og á sama tíma lágt í kolvetnum sem gerir góða hollustu enn betri. Allt grænt grænmeti þykir mér létta lund og ég finn að mér líður vel af því að innan sem utan. Svo að grænkálið geymist lengur nota ég gott ráð hér sem má sjá hér.

Tahini

Tahinidressingin mín sem ég nota á vefjurnar hefur notið mikilla vinsælda hjá þeim sem fylgjast með mér á Snapchat (lifdutilfulls) enda er engin ástæða að spara hana. Ef þú þú hefur ekki notað tahini áður þá er það smjör úr maukuðum sesamfræjum sem fæst í flestum matvöruverslunum nú orðið og bragðast dásamlega. Tahini er ríkt af magnesíum og góðri fitu sem hjálpar að slá á sykurlöngun.

Grænkálsvefjur með dásamlegri tahini dressingu sem tekur tvær mínútur að gera!

Vefjur

2-4 grænkálsblöð (fer eftir stærð)

1/2 gúrka

1/2 bolli rauðkál

Lífrænt epli

Fersk mynta

Sítróna til að kreista yfir

Tahinidressing:

1 msk tahini

1-2 msk eplaedik

1-2 msk sítrónusafi

  1. Hrærið saman í dressinguna og setjið til hliðar.
  2. Raðið grænkálsblöðum á disk. Reynið að velja stór grænkálsblöð í vefjurnar þar sem þær verða auðveldari að borða. Yfirleitt finn ég stór og falleg blöð í búðinni en ef þú átt leið hjá bændamarkaði er það upplagt.
  3. Skerið grænmetið og eplin smátt. Smyrjið tahini dressingu í grænkálsblöðin og dreifið grænmeti yfir. Kreistið sítrónusafa yfir herlegheitin svo auðveldara sé að tyggja grænkálið og það fari betur í meltinguna og stráið svo ferskri myntu að lokum.
  4. Njótið með vinum!

Eplin og myntan gera salatið virkilega ferskt og sætt.  Mér finnst æðislegt að bæta við kjúklingaspírum eða hemp fræjum fyrir auka prótein.

IMG_1512

Fleiri uppskriftir eru væntanlegar!

Vissir þú að það styttist í Sykurlausa áskorun! Það kostar ekkert að taka þátt í 14 daga áskoruninni og þú færð nýjar uppskriftir sem slá á sykurlöngunina. Smelltu hér til að skrá þig og þá færð þú tilkynningu þegar hún hefst í ágúst! 

Deildu með mér: Borðar þú grænkál og ef svo er hvernig notar þú grænkálið?

Segðu mér frá því í athugasemdum

Ef þú átt vin eða vinkonu sem berst  við sykurlöngun, smelltu á like og deildu uppskriftinni með henni á Facebook.

Heilsa og hamingja

Júlía heilsumarkþjálfi

p.s Fylgstu með á Snapchat: lifdutilfulls

Skildu eftir svar

Netfang þitt verður ekki birt.