Hver kannast ekki við að finnast óþægilegt að fara á klósettið og skilja eftir sig vonda lykt? Nú er komin lausn á því sem er hreinasta snilld. Poo-Pourri er úði sem inniheldur blöndu af náttúrulegum ilmkjarnaolíum sem er úðað ofan í klósettskálina og eyðir lykt – áður en hún kemur! Þannig að núna getur þú farið áhyggjulaus á klóið og gert númer tvö án þess að skilja eftir ólykt inni á baðherbergi.
Poo-Pourri hefur slegið í gegn í Bandaríkjunum og frumkvöðullinn og stofnandinn Suzy Batiz hefur fengið mikla athygli og umfjöllun í viðskiptaheiminum Vestanhafs fyrir uppgötvun sína, ekki síst fyrir uppbygginguna á fyrirtækinu sem hefur verið undraverð og án þess að hafa fengið nokkurn fjárfesti að borðinu.
Hver er sérstaða Poo-Pourri?
Hún er sú að spreyið inniheldur bara náttúrulegt stöff sem kæfir ólyktina áður en hún gýs upp. Það eru engin aukaefni í spreyinu, paraben eða phtalates og því veldur það engum umhverfisskaða og það er ekki prófað á dýrum.
Hvernig á að nota Poo-Pourri?
Þessi fallega flaska er hrist og svo er spreyjað 3-5 sinnum ofan í klósettskálina áður en þú sest á klósettið. Síðan getur þú verið alveg róleg/ur vitandi að það mun ekki finnast nein lykt nema frískanid angan af Poo-Pourri. Svo velur þú auðvitað þinn uppáhalds ilm, hibiscus, apríkósu og sítrus, lavendar og vanillu, sítrus eða vanillu.
Hvar fæst Poo-Pourri?
Í apótekum, Fjarðarkaup, Hagkaup og Heimkaup.is
Og hér er skemmtilegt viðtal við stofnanda Poo-Pourri.