GRÆNT – Í HEILSURÆKTINA

Eflaust eru margir að huga að því að koma af stað eða viðhalda góðri og heilsusamlegri rútínu á þessum tíma árs. Við völdum  fyrir nýútkomna vetrarblað Í boði náttúrunnar nokkrar vandaðar umhverfisvænar vörur sem tilvaldar eru til að hafa með sér og nota í heilsuræktinni.

Vita Juwel
-vatnsbrúsi

Þessar einstöku vatnsflöskur eru afrakstur samstarfs vísindamanna og glerlistamanna í þýsku ölpunum. Þær eru gerðar úr blýlausu gleri og hlaðnar jákvæðum kristöllum. Kristallar eru sagðir hafa jákvæð áhrif á orku vatns og eru vatnsflöskurnar því fullkomnar til að taka með sér inn í daginn, sem og í heilsuræktina. Flöskurnar innihalda mismunandi kristalla og kristallablöndur. Rósakvars er sagður styrkja hjartastöð, ametyst örva hugann og hreinn kristall færa skýrleika. Hægt er að nota flöskurnar undir bæði heitan og kaldan vökva.

Fæst í Systrasamlaginu

Verð frá: 9.500 kr


LVR
-jógabuxur

 

Lífrænu mjúku og ótrúlega þægilegu LVR jógabuxurnar er hægt að  nota fyrir næstum hvaða tilefni sem er; í jógatímann, ræktina, göngutúrinn og bara hversdags. Við getum lofað þér að eftir að þú ferð í þær munt þú aldrei vilja fara úr þeim! Buxurnar eru handsaumaðar í Los Angeles og gefur LVR hluta af tekjum sínum til björgunarstöðva fyrir villt dýr í Guatemala. Jógabuxurnar fást í alls konar litum og mynstri.

Fást í Org

Verð: 10.900 kr


Dr. Bronners
-Sápa

Fjölskyldufyrirtækið Dr. Bronner’s hefur framleitt náttúrulegar sápur í fimm ættliði. Fljótandi sápan þeirra er gerð úr lífrænum olíum án viðbættra aukaefna, sem er bæði góð fyrir þig og sjávarlífríkið. Sápuna er  hægt að nota fyrir næstum allt, í hárið, á líkamann og andlitið, svo tilvalið er að taka hana með sér í ræktina. Þú getur meira að segja notað hana til að þvo ræktarfötin eftir á. Upplagt er að kaupa stóran brúsa og fylla svo á minna ílát.

Fæst í: Mamma veit best
Verð: frá 1.952 kr


Ohm
Svitalyktareyðir

Leitin að góðum svitalyktareyði án skaðlegra efna getur reynst erfið. Þessi náttúrulegi svitalyktareyðir er laus við ál og önnur skaðleg efni og virkar með því að gera svitann basískan. Hann er því einn öruggasti og áhrifaríkasti svitalyktareyðirinn á markaðnum. Ohm endist í allt að 24 tíma, kemur í veg fyrir vonda lykt og setur ekki bletti í föt! Hann er vegan og hentugur fyrir bæði konur og karla.

Fæst í MixMix Reykjavík

Verð: 3.790 kr


Toms
skór

Margir kannast við Toms-skó en fyrirtækið er byggt á “one for one” sem þýðir að þegar þú kaupir þér Toms-skópar þá gefur Toms barni í neyð skópar. Fyrirtækið hefur gefið börnum skó í yfir 70 löndum. Skórnir koma í mismunandi litum og mynstri og eru klassísku Toms-skórnir byggðir á hefðbundnum argentískum “Alpargatas” skóm. Toms eru endingagóðir, þægilegir að ganga í og auðveldir að fara í og úr.

Fást í Org

Verð frá 6.950


Hör
-handklæði

Kostir hörhandklæða eru ótal margir: þau hrinda burt óhreinindum, blettum og lykt, verða mýkri með aldri og notkun, eru þynnri en draga í sig 20x meiri vökva en hefðbundin handklæði. Þau eru því fullkomin til að hafa með sér í sund eða heilsuræktina þar sem þau taka lítið pláss í töskunni og eru fljót að þorna. Þessi fallegu handklæði eru ofin með vöfflumynstri og lífga einnig upp á baðherbergið.

Fæst í MixMix Reykjavík

Verð frá: 2.390 – 5.290 kr


Umsjón: Ásta Karen Ágústsdóttir

Skildu eftir svar

Netfang þitt verður ekki birt.