UMSJÓN Inga Elsa Bergþórsdóttir og Gísli Egill Hrafnsson
GULRÓFUSÚPA Handa 6
1 stór gulrófa eða tvær litlar u.þ.b. 1 kg 250 g gulrætur 100 g rauðar linsubaunir (búnar að liggja í bleyti) 1 tsk. karrý ½ tsk. kummin (cumin) 800 ml grænmetissoð (hægt að nota grænmetistening eða duft) 1 dós létt kókósmjólk (400 ml) 1 límóna
Afhýðið gulrófuna og skerið í teninga. Skolið af gulrótunum og skerið í bita. Setjið smá olíu í pott og hitið. Bætið gulrófunum og gulrótunum við. Mýkið grænmetið í pottinum í 2-3 mínútur og hrærið í öðru hverju. Bætið þá við karrýinu og kummin og hrærið í 1 mínútu. Hellið þá grænmetissoðinu og kókosmjólkinni út í, ásamt linsubaununum. Hitið að suðu og látið malla í 20 mínútur. Maukið með töfrasprota. Kreistið út í safa úr einni límónu.
Þessi súpa er stútfull af næringu og alveg einstaklega bragðgóð.