Það er fátt meira hressandi en ískaldur íspinni á sólríkum degi sem bráðnar í munninum og kætir bragðlauka og skap.
Þessi 17.júní ís er svolítið þannig. Hann hefur rjómakennda áferð líkt og úr kúamjólkurís og gefur sætleika frá ferskum íslenskum berjum. Algjör draumur!
Þessi íspinni er laus við unninn og hvítan sykur og mjólkurafurðir og hægt er að útbúa vegan ís með því að skipta út hunangi fyrir hlynsíróp.
Ég vel alltaf hrein hráefni jafnvel þegar ég útbý sætubita, eins og í uppskriftinni af súkkulaði fudge og fleiri ómótstæðilegum hér. Kemur það flestum á óvart hversu sætt og ljúft það er hægt að hafa það án sykurs!
Sælgætis íspinnar með jarðaberjum og kókos
Ísinn:
½ bolli kókosmjólk
¼ bolli kókosmjöl (einnig má nota möndlu- eða hnetumjólk)
2-3 tsk hunang eða hlynsíróp
stevia með vanillubragði eða vanilludropar (einnig má nota piparmyntudropa)
Ávextir:
Fersk íslensk jarðaber
Fersk íslensk bláber
- Setja innihaldsefni fyrir ísinn í skál eða blandara og hrærið saman.
- Raðið ávöxtum í formin
- Hellið yfir í íspinnaform upp að 3/4. Setjið íspinna og frystið yfir nóttu.
Nokkur hollráð fyrir íspinnagerð:
- Skiptu út berjum fyrir kiwi, mangó, hindber, banana, melónu eða ferskjum.
- Bættu við 1/2 msk chia fræjum
- Bættu við 1 msk kakó fyrir súkkulaði draum! namm!
Ég fékk þessi ísbox í byggt og búið og pinnana í Sostrene Grene!
Ef þér líkaði greinin deildu áfram á facebook með vinum, samstarfsfélögum eða hverjum þú telur vilja svala þorstanum með þessum sykurlausa ís!
Þar til næst
heilsa og hamingja
Júlía heilsumarkþjálfi
p.s Þarftu á hreinsun að halda?
Ég tek reglulega hreinsun og finn vellíðan sem fylgir því. Taktu hreinsunarprófið hér og tryggðu þér ókeypis matseðill fyrir 1 dag í saðsamri hreinsun. Með skráningu færðu tækifæri á að vera með í 5 daga hreinsun mína sem kemur þér í bikiniformið fyrir sumarið.