Við hjá Í boði náttúrunnar urðum svo hrifnar af þessari að við urðum að segja ykkur frá henni en hún Berglind á Gulur Rauður Grænn og Salt birti hana um daginn. Það er löngu orðið tímabært að birta uppskrift af köku sem bæði nærir og gleður en þá á svo sannarlega við um þessa hráfæðiköku. Hún er stútfull af góðri næringu og inniheldur meðal annars kasjúhnetur, döðlur, ber, kókosvatn og svona mætti lengi telja. Kaka sem má jafnvel borða í morgunmat með góðri lyst og svíkur engan.
Hráfæðikaka með “súkkulaði”- og jarðaberjafyllingu
“Súkkulaði” fylling
250 g kasjúhnetur
2 bananar
170 g döðlur, steinlausar
60 ml kókosolía, fljótandi
½ tsk vanilludropar
60 ml kókosvatn eða möndlumjólk
Jarðaberjatoppur
300 g berjablanda (t.d. jarðaber og bláber), frosin (ég hafði jarðaberin í meirihluta)
220 ml möndlumjólk eða kókosvatn
1 banani eða 170 g döðlur
- Blandið öllum hráefnunum fyrir súkkulaðibotninn saman í matvinnsluvél og maukið vel saman. Setjið súkkulaðiblönduna í form hulið plastfilmu í botninum (það gerir það einfaldara að taka úr forminu). Setjið í frysti.
- Gerið jarðaberjafyllinguna með því að blanda öllu saman í matvinnsluvél þar til það er orðið mjúkt. Setjið þá varlega yfir súkkulaðibotninn. Frystið í amk. 2-3 tíma.
- Berið fram með með ferskum berjum.
Njótið vel!