Keppnin um Súrdeigsbrauð ársins 2019-2020

Í tilefni af útgáfu næsta tölublaðs tímaritsins Fæða|Food – A Little Taste of Iceland ákvað ritstjórn blaðsins að efna til skemmtilegrar keppni sem tengist efni væntanlegs blaðs; keppnina Súrdeigsbrauð ársins 2019-2020.

Eitt aðalþema tölublaðsins 2019 er nefnilega bakstur og íslenskar hefðir sem tengjast bakstri. Meðal efnis er íslenska flatkakan, endurkoma brauðtertunnar, veisluhefðir landans, íslenskt kaffibrauð og byltingin sem orðið hefur í súrdeigsbakstri á Íslandi.

Við héldum keppnina sjálfa föstudaginn 11. október og voru viðbrögðin við henni í alla staði frábær. Tíu bakarí af öllu landinu skráðu sig til leiks og mátti hvert bakarí aðeins senda inn eitt brauð, sem annað hvort væri í sölu eða yrði til sölu eftir keppnina og þurfti að uppfylla ákveðnar gæða kröfur. Að morgni keppnisdags streymdu brauðin inn m.a. með flugi og strætó!

Dómnefndin

Í dómnefnd sátu: Árni Ólafur Jónsson – gestaritstjóri Fæða|Food 2019, kokkur og sjónvarpsmaður, Dominique Plédel Jónsson, formaður Slow Food samtakanna á Íslandi og eigandi Vínskólans og Ragnheiður Maísól Sturludóttir, listamaður og stofnandi Facebook-hópsins Súrdeigið.

Úrslit:

Dómnefndin gaf einkunn út frá bragði, þéttleika, skorpu, ilmi, útliti o.fl. Almennt var dómnefndin mjög sátt við gæðin á súrdeigsbrauðunum sem voru send inn en þrjú brauð voru þó stigahæst.

Litla brauðstofan – Hveragerði – bakari: Dörthe Zenker frá Þýskalandi
The Coocoo’s Nest – Reykjavík – bakari: Lucas Keller frá Bandaríkjunum
Sandholt bakarí – Reykjavík – bakari: Bashir Mirafghan
frá Afganistan
Frú Eliza Reid, forsetafrú, afhenti svo sigurvegaranum – Lucas Keller hjá The Coocoo’s Nest verðlaunin Súrdeigsbrauð ársins 2019-2020 mánudaginn 28. október.

Brauð Lucas Keller þótti enda listilega vel gert brauð, einstaklega fallegt, ilmríkt og bragðgott. Svo gott að dómnefnd var sammála um að fólk ætti að gera sér ferð út á Granda til að næla sér í eitt slíkt.
Við óskum Coocoo’s Nest innilega til hamingju með sigurinn.

Sérstaka viðurkenningu hlaut Sigfús hjá Brauðhúsinu Grímsbæ fyrir framúrskarandi brauð og fyrir að vera brautryðjandi í súrdeigsbakstri á Íslandi – en brauðið frá Brauðhúsinu var eina heilkorna formbrauðið sem sent var inn og því töluvert ólíkt hinum brauðunum í keppninni.

Við óskum Sigfúsi, Dörthe, Lucasi og Bashir til hamingju með frábæran árangur.