Listin að elska sjálfan sig

Við þekkjum það flest hvernig það er að elska aðra. Við erum tilbúin að ganga í gegnum súrt og sætt fyrir manneskjuna sem við elskum. En þegar kemur að manni sjálfum, þá virðist allt annað búa að baki. Við verðum hrædd um að virðast sjálfselsk ef við hælum sjálfum okkur. Því bregðum við á það ráð að gera lítið úr okkar sigrum. Ef þú hugsar út í það – hvort ertu duglegri að hrósa sjálfum þér eða tala niður til þín? Það er erfitt að taka skrefið í að læra elska sjálfan sig og sína sjálfri sér þá virðingu sem maður á skilið.
Nokkur ráð til að læra elska sjálfan sig:

  1. Áður en þú heldur út í daginn skaltu gefa þér tíma á morgnana til að anda djúpt inn og minna sjálfan þig á hversu mikils virði þú ert.
  2. Gefðu þér tíma til að kynnast eigin huga. Sumum finnst gott að hugleiða. Aðrir halda dagbók.
  3. Prófaðu nýja hluti. Stígðu út fyrir þægindarammann. Skráðu þig á námskeið eða upplifðu nýja staði.
  4. Hreyfðu þig reglulega og hugsaðu um matarræðið. Mikilvægt er að finna hreyfingu sem á vel við þig.
  5. Dveldu ekki í fortíðinni Sættu þig við þá hluti sem ekki er hægt að breyta.
  6. Einbeittu þér að því jákvæða. Umkringdu þig fólki sem veitir þér gleði og hamingju. Minnkaðu tímann með þeim sem draga þig niður.
  7. Áður en þú ferð að sofa renndu yfir það sem þú áorkaðir yfir daginn. Hrósaðu þér fyrir það sem þú gerðir vel. Minntu þig á að það er í lagi að gera mistök og að á morgun kemur nýr dagur fullur af nýjum tækifærum.
  8. Á hverjum degi skaltu standa fyrir framan spegil og hrósa þér. Segja eitthvað fallegt um sjálfan þig.
  9. Vendu þig á að tala jákvætt um sjálfan þig. Hugsaðu um það hvernig þú myndir tala við aðra sem þú elskar. Yfirfærðu það svo yfir á þig.
  10. Náðu sátt við sjálfan þig. Ekki setja á þig óraunhæfar kröfur sem erfitt er að standa undir. Það er í lagi að setja sér markmið og vilja bæta sjálfan sig en þau verða að vera raunhæf.

Að lokum þá hvet ég þig til að fara á stefnumót með sjálfum þér. Það getur lesið góða bók í einrúmi, farið í slakandi bað við kertaljós eða jafnvel skellt þér í bíó. Veldu eitthvað við þitt hæfi sem lætur þér líða vel.