Arnbjörg Kristín Konráðsdóttir er kundalini jógakennari, jógískur ráðgjafi, heilari, grafískur hönnuður og listakona. Hún starfar við kennslu á kundalini jóga og hugleiðslu í Reykjavík og á Akureyri, jóga í vatni, gönguhugleiðslu og krakkajóga fyrir krakka sem eru að stíga sín fyrstu skref í skólakerfinu. Hún málar einnig listaverk innblásinn af því andlega sem eru ætluð sem stuðningur við slíka iðkun heima fyrir eða hafa góð áhrif á umhverfið. Við fengum að forvitnast hvernig þessi flotta og fjölhæfa kona byrjar daginn.
Hvenær og hvernig vaknar þú á morgnanna?
Vakna um klukkan 7 við vekjaraklukkuna í skammdeginu, vakna oftast sjálf á öðrum árstímum, fæ mér vanalega sítrónuvatn áður en ég borða nokkuð annað.
Hvernig eru morgunvenjurnar?
Ég geri mitt besta til að viðhalda daglegri jóga og hugleiðsluiðkun á morgnana. Á vorin og sumrin fer ég út hlaupa í um 20 mínútur, stundum lengur og enda stundum í Nauthólsvík þar sem ég geri jóga og hugleiðslu við hafið. Eftir það er sturta og hún er köld í lokin og eftir það ber ég á mig andlitskrem frá Una skincare.
Hvernig heldur þú í þessar venjur?