Sólveigu Eiríksdóttur þekkjum við flest. Hún er ofurkona, frumkvöðull í íslensku hollustufæði og alltaf með bros á vör. Nú rekur hún veitingarstaði Gló þar sem er hægt að fá bragðgóðan og bráðhollan mat. Við urðum að fá að vita hvernig þessi kjarna kona byrjar daginn sinn:
Hvenær og hvernig vaknar þú á morgnana?
Ég vakna um 6 leytið – oftast sjálf, en stilli klukkuna til öryggis.
Hvernig eru morgunvenjurnar?
Ég byrja daginn að þurrbursta líkamann, ber síðan á mig kókosolíu og fer í heita og kalda sturtu 🙂
Síðan les ég nokkrar síður í góðri andlegri bók, eitthvað uppbyggjandi sem ég hugleiði á og tek með mér út í daginn
Þar næst skutla ég í mig “ógeðsskoti” sem samanstendur gjarnan af skrýtnum duftum og svo fæ ég mér grænan djús þá er ég tilbúin fyrir daginn 🙂
Hvernig helduru í þessar venjur?
Ég geri allt tilbúið áður en ég fer í rúmið, set ógeðsskotið í lítið staup, geri allt til í djúsinn, hef bókina á náttborðinu og þegar ég ligg á koddanum á kvöldin sé ég þetta fyrir mér og það virkar!