Sjálfsnudd með heitum olíum

Heitar olíuauðlindir Ayurveda!

Vandaðar grunnolíur sem innhalda virkar lækningajurtir eru ein af undirstöðuþáttum indversku lífsvísindanna, Ayurveda. Mælt er með daglegu sjálfsnuddi upp úr heitri olíu í þeim sígildu fræðum. Þannig megi ráða bót á margskyns kvillum enda er meginmarkmið Ayurveda að fyrirbyggja alvarlega sjúkdóma. Þykir olíunudd ein öflugasta leiðin til þess.

Getið er um góð áhrif daglegs sjálfsnudds undir heitinu abhyanga í hinum 5000 ára gömlu vedísku ritum. Lagt er til 15 mínútna nudd á hverjum einasta morgni (eða kvöldi) upp úr heitri olíu. Annars vegar til að tryggja góða daglega líðan og hins vegar styður það óneitanlega við aukna núvitund og “self-compassion” eða kærleik í garð okkar sjálfra.

Það sem einnig kemur skýrt fram í vedísku textunum um abhyanga er hin mikla áhersla á að við fáum tækifæri til að frásoga lækningajurtirnar í gegnum okkar stærsta líffæri, húðina. Mælt er með að þú nuddir þig hátt og lágt og látir þá olíuna og jurtirnar sem henta þinni líkamsgerð frásogast vel inn í líkamann. Þannig áttu að ná að vinda ofan af þér, nærast líkamlega og andlega og losa líkamann við uppsöfnuð eiturefni. Að auki kemur nuddið jafnvægi á dosur líkamans (vata, pitta kafa).

Ávinningur daglegs nudds upp úr heitri olíu:

Eykur blóðflæði, ekki síst til okkar fíngerðu taugaenda

Róar taugakerfið

Bætir svefn

Mýkir liði og dregur úr stífleika

Eykur núvitund

Hreinsar og þéttir húð

Eykur teygjanleika húðar

Gefur húðinni ljóma

Formar líkamann

Eykur lífsþrótt

Að bera olíu á líkamann – góð ráð!

Hitaðu olíuna undir heitri vatnsbunu eða settu í vatnsbað, líkt og þegar þú ert að bræða súkkulaði eða smjör.  Hafðu hana vel heita. Það er notalegra. Komdu þér í núvitundarástand. Vertu með sjálfri/um þér. Hafðu hugann við þann líkamspart sem þú ert að bera á hverju sinni.

Sittu eða stattu á handklæði og vertu í herbergi sem er hlýtt og notalegt, sem oftast er inn á baði. Gott er að taka frá sérstakt handklæði sem þú notar eingöngu fyrir olíunuddið. Notaðu lítið af olíu í einu og nuddaðu vel þar til hún fer inn í húðina.  Gerðu eins og almennt er ráðlagt, byrjaðu á fótunum (og já iljunum líka) og nuddaðu uppeftir líkamanum í hringlaga hreyfingum. Notaðu báðar hendur. Þeir sem eru háir í vata orku ættu að hafa hreyfinganar mýkri en kafa týpurnar kröftugri. Pitta líkamsgerðin er þar á milli.

Höfuð og fætur! Við höfuðið er best að byrja á enninu og gagnaugum og fikra sig upp að hárinu. Það er róandi að nudda höfuðleðrið vel, sérstaklega fyrir vata sem eru gjarnan viðkvæmari þar en aðrir. Ef þú ert með sítt hár er gott ráð að setja olíu í dropateljara og nudda svo hársvörðinn. Það er afskaplega gott að setja olíu í allt hárið af og til – ekki endilega á hverjum degi- og sofa með hana. Daginn eftir er trikkið að setja fyrst sjampó í hárið áður en það er bleytt. Þannig náum við olíunni úr.

Þegar maður nuddar fæturnar er best að sitja á handklæði á gólfinu og gefa sér tíma til að nudda ristar og iljar. Ef þú nuddar þig að kvöldi er mjög gott að sofa með olíuna á fótunum en fara þá í bómullarsokka upp í rúm. Nætursvefninn verður betri – vittu til.

Ayuvedísku olíurnar fyrir hverja líkamsgerð!

Til að öðlast innsýn inn í hvaða líkamsgerð/dosa er ríkjandi í þér samkvæmt Ayurveda er hér einfalt og gagnlegt próf HÉR.
…Og fyrir forvitnissakir – og til skemmtunar þá skeltum við með nokkrum dæmum um ríkjandi líkamsgerð nokkura heimsfrægra einstaklinga, sem geta gefið einhverjar vísbendingar.

PITTA
Madonna: Skörp bisnesskona. Seig. Heimsfræg í langan tíma. Metnaðargjörn. Meðalhæð og -líkamsbygging. Bill Gates: Fluggáfaður. Hefur allstaðar áhrif. Jafnvel utan síns fags. Metnaðargjarn. Umbúðarlaus.

Pitta líkamsolían:
Inniheldur blöndu af brahmi, guduchi og manjista,  í sesam- og sólblómaolíu. Þessar þekktu Ayurveda jurtir eru notaðar til að koma jafnvægi á ríkjandi pitta. Þær losa okkur við umfram hita og stífni en eru um leið slakandi og draga úr þeirri spennu í vöðvum sem pitta ójafnvægi getur valdið. Mælt er með daglegu sjálfsnuddi sem nærir húðina en það er einmitt í húðinni sem pitta týpurnar safna gjarnan upp heilmikilli spennu.
Pitta týpurnar eru með ríkjandi eld og vatn í líkama sínum. Líffræðileg umbreyting í líkamanum krefst alltaf þessarra frumefna, þ.e. meltingin, efnaskiptin, líkamshitinn, skynjunin og skilningurinn. Pitta líkamsgerðin er drífandi og metnaðargjörn og ætti því sannarlega að taka reglulega frá tíma til að róa sig niður og kæla.

KAFA
Oprah Winfrey: Stórgerð kona í mörgum skilningi. Stór glitrandi augu. Kærleiksrík og örlát. Luciano Pavarotti: Djúp hljómmikil rödd. Stór í sniðum.

Kafa líkamsolían:
Er líkt og pittaolían í lífrænum sesam- og sólblómaolíugrunni. Þessi hressandi olía inniheldur m.a. jurtirnar ormulated punarnava, chitrak, calamus, og rósmarín. Allt jurtir sem gefa orku, ræsa kerfið og auka hreyfigetu. Kafa týpurnar mega gjarnan nudda sig kröftuglega. Þessi olíublanda dregur úr ofgnótt kafa og ýtir undir svita, hreinsun líkamans og örvar blóðrásina. Ríkjandi kafa líkamsgerð þarf gjarnan á hressingu og endurnæringu að halda og ætti því að bæta þessarri olíu við daglega rútínu sina.
Kafa líkamsgerðinni er stjórnað af frumefnunum jörð og vatni. Auðvitað grunnur okkar allra og sá þáttur sem mótar líkamann. Kafa hefur líka með innri líffæri okkar að gera og fitumólíkúlin sem þurfa á sérstakri örvun að halda með daglegu sjálfsnuddi og ríkulegu magni af olíu.

VATA
Christy Turlington: Há og grönn. Alltaf á hreyfingu. Beinabert andlit. Mick Jagger: Síhoppandi. Skapandi. Grannur. Óútreiknanlegur.

Vata líkamsolían:
Yngjandi olía sem inniheldur hárfína blöndu níu jurta, þar á meðal ashwagandha, bala og passíublóm. Þessi er í grunni sesam- og ólífuolíu sem nærir og jarðtengir vata orkuna. Samkvæmt Ayurveda er engin önnur líkamsgerð sem þarf eins mikið á olíu og daglegu nuddi halda til að viðhalda ró, styrk og fegurð.
Vata stjórnast af frumefnunum lofti og eter. Allar tilfinningar okkar krefjast vata en auk þess andardrátturinn, taugakerfið, hugsanir, þvaglát, melting og breytingaskeiðið (ATH að vataorkan  (vata=haust) vex jafnan innra okkur með aldrinum). Nuddið á þó að vera mjúkt og mótandi. Það gefur jarðtengingu og stöðugleika.

Og ATH, ef þið náið ekki að nudda ykkur á hverjum degi, þá er það í lagi. Allir nýjir siðir taka tíma og um að gera að sýna ykkur smá “self-compassion”.

Olíurnar frá heilsuvörufyrirtækinu Banyan eru unnar útfrá Ayurveda fræðunum.

Hér bendum við á aðra áhugaverða grein um lífsvenjur Ayurveda:

Oliur Banyan

 

 

Tögg úr greininni
, , , , , , ,