Ashwagandha, ljósið í skammdeginu!

Nú þegar dagurinn er með styðsta móti og hitastigið hríðlækkar finnum við flest fyrir miklum breytingum. Líkt og náttúran hefur skipt um takt og lit gerum við manneskjurnar það líka. Við verðum gjarnan sveiflukenndari í skapi, eins og vindar vetrarins, stífari í skrokknum og orkuminni. Á meðan sumum finnst tíðin notaleg verða aðrir blúsaðri. Frá sjónarhorni Ayurveda á þetta sér ofureðlilegar skýringar. Minni birta hefur áhrif á prönuna okkar, eða sjálfa lífsorkuna. En um leið eiga indversku lífsvísindin svar við orkuleysinu, stífleikanum og skammdegisdepurðinni. Meðal annars í hinni mögnuðu vatajurt ashwagandha. En líka margt annað.

Pranan er í raun fíngerð orka sem gefur öllum verum og sjálfu sköpunarverkinu lífsorku. Hún er nátengd öndun þó hún sé ekki að öllu leyti bundin henni. Hugmyndafræðilega er þetta orkan sem streymir frjáls og taktföst um líkamann og færir okkur orku, kraft, heilsu og jafnvel sjálfa gleðina. Þegar pranan mætir mótlæti og höktir, kunnum við að finna fyrir staðbundnum verkjum, stífleika, óþægindum, hræðslu eða óróleika sem dregur úr lífskrafti okkar. Allt veltur á hvar og hvernig hindranirnar birtast.

Samkvæmt Ayurveda er ein af aðaluppsprettum prönunnar sjálft sólarljósið. Mikilvægi þess er vel þekkt og rannsakað. Orkan sem frá henni stafar er kveikja prönunnar sem hefur svo áhrif á allt líf. Þar á meðal jurtir og tré og sem og dýr og menn. Sólin er lífsnauðsynlegur og órjúfanlegur hluti tilvistarinnar og hefur líka áhrif á líðan okkar En hvað gerist þegar náttúran býður okkur upp á takmarkað sólarljós? Líkt og nú í skammdeginu? Eitt er að fleiri halda sig inni en áður. Þó er eitt af því mikilvægasta sem við getum gert í skammdeginu er að fara út og viðra okkur þegar sól er hæst á lofti, jafnvel þótt við sjáum ekki til hennar. En það er líka mikilvægt og jafnvel lífsnauðsynlegt muna eftir að taka inn D- og K vítamín. Þó eru heldur betur fleiri leiðir til að viðhalda prönunni og hrista af okkur slenið og drungann.

Hin kraftmikla Ashwagandha jurt

Í fyrsta sæti yfir frábærar vetrarjutir er að okkar mati hin kraftmikla Ayurveda jurt ashwagandha sem bætir bæði geð og orku en það gerir hún með því að næra taugakerfið og draga úr órólegri vataorku, sem er einmitt orkan sem nú er ríkjandi núna í náttúrunni, eða veturinn; kuldinn, þurra loftið og vindarnir. En ofan á það er streita af sama meiði, hin óþægilega birtingarmynd vataorkunnar ofan á vetrartíðina. Því skiptir nú öllu að lægja öldurnar innra með okkur.
Þannig getur vönduð lífræn ashwagandha jurt gert gæfumun í skammdeginu. Því um leið og hún dregur úr streitu, eykur hún orku og bætir svefn. Það stafar af því að hún hefur þá eiginleika að auka T3 og T4 skjaldkirtilshormónin sem koma jafnvægi á hormónabúskap líkamans. Og líka þar sem hún er það sem kallað er Yang jurt (samkvæmt kínversku læknisfræðinni) er hún jafnframt góð fyrir hreinsunarkerfi líkamans. En umfram allt hafa margar rannsóknir á ashwagandha tengdar taugakerfinu lofað mjög góðu. Rannsóknir hafa m.a. sýnt að jurtin dregur úr hrörnun heilafrumna, skerpir minni og dregur úr hræðslu og depurð. Og eitt það áhugaverðasta er að ólíkt mörgum “róandi” og “geðlyfjum” eru engar aukaverkanir. Að þessu sögðu eru líka nokkrar áhugaverðar rannsóknir í gangi á áhrifum ashwagandha á tauga- og heilasjúkdóma á borð við Parkisons og Alzheimer sem lofa góðu.

ashwagandhaHitt er að Aswagandha er jaframt mjög bólgueyðandi (sem m.a. dregur úr stífleika) og því eru vísindamenn einnig að skoða hana með tilliti til ýmissa tegunda krabbameina. Rannsóknir á tilraunastofu hafa sýnst að ashwahandha dregur úr vexti krabbameina í lungum, ristli, brjóstum, maga og húð. Þessar rannsóknir fólu líka í sér að sýnt þykir að ashwaganda truflar endurnýjun krabbameinsfrumna, sem er jafnvel ennþá áhugaverðara.

Svo eru það áhrif ashwagandha gegn streitu. En að auki er hún bakteríudrepandi sem sýnir að hún styrkir ónæmiskerfið. Því er hún einnig frábær vörn gegn margskonar flensum. Einnig er ótvírætt að ashwagandha er góð uppspretta náttúrulegrar orku. Hún lækkar kólesteról, kemur jafnvægi á blóðsykurinn og er adaptogenjurt sem merki að hún hefur mikla virkni og litlar sem engar aukaverkanir.

Ef þú þú ert að kljást við veðrabreytingar í sálinni í skammdeginu, flensu, orkuleysi, stífni og allskyns óþægindi gæti góð lífræn og vel unnin ashwagandha jurt, eins og fæst frá Viridian í Systrasamlaginu, verið svarið.

Önnur mjög góð Ayurveda ráð gegn skammdegisdepurð og orkuleysi eru:

Pranayama öndun. Fyrir utan að reyna að fara út og ná í þá litlu birtu sem í boði er, er djúp og hnitmiðuð öndun auðvitað þungamiðja lífsins. Eins og felst í orðinu hjálpar Pranayama öndunin að virkja prönuna svo hún flæði um án hökts og hindranna. Þarna koma reynslumiklir jógakennarar að gagni sem geta kennt réttu tæknina.

Heitt oílunudd: Þetta er sannarlega lúxus sem við getum veitt okkur sjálf og kostar lítið. Heitt olíunudd hentar öllum líkamsgerðum, sérstaklega á þessum árstíma. Það dregur úr streitu og nærir inn að beini á þessum annars þurrasta tíma ársins þegar við erum gjarnan með þurra húð og stífari liði en venjulega. Gott er að bera olíu á sig áður en farið er í sturtu á morgnanna og/eða á iljarnar fyrir svefninn. Húðin er jú stærsta líffærið og notalegt olíunudd jarðtengir okkur. Best er að notast við lífræna sesamolíu eða olíublöndu sem eru sérstaklega búnar til fyrir vata/vetrartíðina.

Chyavanprash: Þessi hefðbundna Ayurveda “sulta” er einskonar lýsi þeirra Indverja. Þetta er forn uppskrift sem inniheldur andoxunarríkar jurtir þar á meðal amilaki (einnig þekkt sem amla). Sérlega gott fyrir ónæmiskerfið. Frábært að eiga í forum sínum á vata vetrartímum. Svo er hún svo bragðgóð (bragðbetri en lýsið).

Fæða sem dregur úr óþægindum vata, sem birtist m.a. í því að við verðum speisuð og orkuminni, er fæða sem færir jarðtengingu. Það er fæða sem er heit og nærandi. Hér er sérstaklega átt við heitar súpur, kássur, góð te, jafnvel kaffi, og góðar og nærandi olíur og mikið af þeim. Matur sem þessi viðheldur lífsneistanum í vetrarkulda sem t.d. hráfæði gerir harla, nema stundum með þá mjög sterkum og hitagefandi jurtum. Þó er ein leið náttúrunnar til að geyma lífsorku að safna í sig blaðgrænu. Það er því gott ráð að muna að hafa hið dökkgræna og hjartastyrkjandi með í máltíðum. Það á m.a. við þegar þið fáið ykkur þeyting. Þar er blaðgræna og engifer er gott kombó. En önnur krydd sem eru hitagefandi og góð yfir veturinn eru chilli og kardimommur. En umfram allt ættu flestur að njóta þess að krydda matinn með engifer eða fá sér engiferskot yfir daginn. Það styrkir ónæmiskerfið, er hitagefandi og dregur úr verkjum og stífleika í skrokknum og færir okkur smá jörð.