Eiturefni geta komið úr mat, snyrtivörum, jafnvel frá streitu eða skorti á svefni og því mikilvægt að viðhalda og sinna hreinsun líkamans. Hér koma mín helstu hreinsunarráð sem ég reyni að sinna daglega.
10 hreinsunarhollráð Júlíu
- Vatn
Drekktu meira af vatni yfir daginn og reyndu að fara upp í 2 lítra á dag.
- Byrjaðu morgnana á bolla af heitu vatni með kreistri sítrónusneið.
Heitt vatn með sítrónu hjálpar líkamanum að losa sig við eiturefni ásamt því að bæta meltingu og auka þyngdartap vegna pectin-trefja og basískra eiginleika sítrónunnar.
- Taktu acidophilus (probiotics) daglega.
Acidophilus bætir jákvæða bakteríuflóru líkamans og hjálpar meltingunni að starfa betur og þannig flytja úrgang hraðar út.
- Bættu við kryddjurtum,
Margar kryddjurtir hafa sérstaka hreinsunareiginleika sem hjálpa líkamanum að hreinsa náttúrulega (minta, basilika).
- Fáðu nægan svefn
Vertu viss um að þú fáir nægan svefn svo líkami þinn geti endurnýjað sig að innan sem utan og líffæri hreinsað sig náttúrulega.
- Hægðu á þér á meðan þú borðar og tyggðu vandlega.
Einbeittu þér að bragði og samsetningu máltíðarinnar og forðastu rafrænar truflanir eins og frá síma, tölvupósti eða sjónvarpi meðan á máltíð stendur. Þú ert líklegri til að skynja hvenær þú ert södd/saddur þegar þú ert ekki að gera tíu aðra hluti á sama tíma.
- Hreyfðu þig meira yfir daginn.
Farðu út að ganga, lyftu eða hvað sem fær þig til þess að svitna og komdu blóðflæðinu af stað og eiturefnunum út.
- Farðu í gufu.
Líkaminn hreinsar sig einna helst út frá húðinni og því er frábært að fara í gufubað eða sánu.
- Þakklæti
Taktu eftir einhverju einu sem þú ert þakklát/ur fyrir áður en þú ferð að sofa á hverju kvöldi. Að beina huganum að því jákvæða í lífi þínu er frábær leið til að ljúka deginum og minnka streitu.
Bláber, krækiber, sveskjur og jarðarber eru fæða sem eru rík af andoxunarefnum og gott að bæta við útí þeyting eða borða í eftirrétt.
Ef þú vilt svo taka þetta skrefinu lengra getur þú sótt matseðil fyrir einn dag úr 5 daga matarhreinsun minni með uppskriftum sem styðja við hreinsun, þyngdartap og gefa þér auka orku: Smelltu HÉR
Heilsa og hamingja