10 ráð til að koma fjölskyldunni í rútínu

Nú er sumarið að líða undir lok og börn og ungmenni víða um land að hefja skólagöngu á ný. Margir foreldrar kannast við hversu erfitt getur verið að koma rútínunni í gang og fá börnin til að vakna snemma og fara að sofa á skikkanlegum tíma. Þetta er ekki einungis erfitt fyrir börnin því foreldrarnir þurfa sjálfir að stilla eigin takt og vakna fyrr en venjulega til að gera allt klárt fyrir daginn og komast til vinnu á réttum tíma.

HÉR ERU NOKKUR HAGNÝT RÁÐ TIL AÐ AUÐVELDA FERLIÐ:

  1. VAKNA FYRR Á MORGNANA: Gott er að rétta af taktinn nokkrum dögum áður en skólarnir hefjast og fara á fætur hálftíma fyrr og svo koll af kolli þar til þið eruð farin að vakna á áætluðum tíma.
  2. EKKI SOFA ÚT UM HELGAR: Þegar þið hafið náð að koma upp ásættanlegum svefntíma er mikilvægt að reyna að halda honum líka um helgar.
  3. HLUSTA Á LÍKAMANN: Farið í rúmið þegar þið finnið fyrir þreytu og syfju. 
  4. FORÐAST RAFTÆKI FYRIR SVEFN: Bæði börn og fullorðnir ættu að forðast sjónvarpsgláp, tölvu og símanotkun síðasta klukkutímann áður en farið er að sofa.
  5. GEYMA SÍMANN FRAMMI: Þegar börn og unglingar eru með eigin síma er góð regla að láta þau skilja símann eftir á góðum stað (fyrir utan herbergisdyrnar) þegar farið er í rúmið. Þannig minnka líkurnar á því að freistast til að kíkja á netið eða senda sms eftir að ljósin hafa verið slökkt. Þetta er líka góð regla fyrir þá sem eldri eru.
  6. SKAPA RÓLEGT ANDRÚMSLOFT Á KVÖLDIN: Mikilvægt er að klára heimaverkefni og húsverk snemma kvölds. Líkami og hugur þurfa tíma til að komast í ró áður en farið er í rúmið. Farið til dæmis í heitt bað eða lesið góða bók. 
  7. DRAGA ÚR LJÓSMAGNI: Minnkið birtuna í íbúðinni smám saman þegar líða tekur á kvöldið. Það verður fljótt vísbending um að senn líði að háttatíma.
  8. SLEPPTA KOFFÍNDRYKKJUM: Það er ekki gott að neyta mikils koffíns eftir hádegi. Passið sérstaklega uppá að börn og unglingar séu ekki að drekka gos eða orkudrykki sem innhalda koffín.
  9. MYRKUR OG GOTT LOFT: Góð myrkvatjöld og svalt loft.
  10. HREINLÆTI OG SKIPULAG: Gerið góða hausthreingerningu í svefnherbergjum, skiptið á rúmum og athugið hvort sængur og koddar séu í góðu lagi.
Tögg úr greininni
, ,