Fiskur er hráefni sem maður fær sjaldan leið á. Oft lítum við Íslendingar öfundaraugum til landanna handan hafsins þar sem fjölbreytni er meiri í mat. En ferskleiki fisksins sem við höfum hér er torfundinn annarsstaðar. Í raun má segja að fiskbúðirnar séu okkar matarmusteri með sínum breytileika eftir árstíðum. Annað hráefni sem við höldum mikið upp á er íslenska byggið en það fer einstaklega vel með fiskinum.
Bakaður fiskur með kryddjurtaþekju, byggottói og appelsínujógúrtsósu
– Fyrir 4 1 msk. ólífuolía 4 x 200 g fisksteikur, t.d. þorskur, keila eða blálanga 4 franskbrauðsneiðar, ristaðar 1 1/2 hvítlauksrif, pressað rifinn börkur af einni sítrónu 1 tsk. sítrónusafi lauf af u.þ.b. 8 stilkum af ferskum kryddjurtum s.s. steinselju, dilli eða estragoni 1/2 tsk. Maldon-salt
Stillið ofninn á 220°C Ristið brauðsneiðarnar í brauðrist eða ofni og rífið þær ofan í matvinnsluvél. Bætið við hvítlauksrifinu og sítrónuberkinum. Hakkið niður í grófa mylsnu. Bætið þá við kryddjurtunum, ólífuolíunni og sítrónusafanum og hakkið fínt. Setjið fiskstykkin á bökunarplötu eða mót sem hefur verið olíuborið. Saltið og piprið fiskinn. Takið mylsnuna og þjappið henni ofan á fiskstykkin. Bakið í ofni í 10–12 mínútur.
APPELSÍNUJÓGÚRTSÓSA
3 msk. jógúrt eða súrmjólk 3 msk. sýrður rjómi rifinn börkur af 1 appelsínu salt og pipar Hrærið allt saman.
BYGGOTTÓ
3 msk. ólífufuolía 175 g perlubygg 1 laukur, smátt saxaður 1 hvítlauksrif, smátt saxað 700 ml grænmetis- eða kjúklingasoð 1/2 paprika, skorin í strimla 4 sneiðar beikon, skorið í u.þ.b. 1 cm strimla salt og pipar
Hitið pönnu og setjið ólífuolíuna á hana. Bætið bygginu saman við og hrærið stöðugt í þar til það hefur tekið á sig gullinn lit eða í 4–5 mínútur. Setjið þá laukinn út í og hrærið stöðugt áfram í 5–10 mínútur. Bætið loks hvítlauknum út í. Hellið þá soðinu saman við og látið malla svo byggið dragi í sig vökvann.
Eftir 25 mínútur, steikið paprikuna og beikonið á annarri pönnu og blandið síðan út í byggottóið. Hrærið í öðru hverju. Látið malla í 10–15 mínútur eða þar til byggið hefur dregið í sig vökvann.