Eiginleikar ilmkjarnaolía

Ilmkjarnaolíur er eitt það magnaðasta sem ég hef kynnst. Ég hafði aldrei heyrt getið um ilmkjarnaolíur fyrr en ég sat námslotu um olíur í Heilsumeistaraskólanum og varð strax mjög hrifin enda kynntist ég þar hreinum, hágæða kjarnaolíum. 

TEXTI Valdís Sigurgeirsdóttir

Ilmkjarnaolíur eru kraftmikil náttúruafurð sem eru fengnar með eimingu úr rótum, blöðum, blómum og trjákvoðu planta. Þær geta verið misjafnar gæðum og skipta t.d. gæði plöntunar, ræktunarskilyrði og aðferðin við að ná olíunni miklu. Ilmkjarnaolíur hafa verið notaðar í þúsundir ára og þær geta virkað græðandi, sótthreinsandi, róandi, styrkjandi og verkjastillandi svo eitthvað sé nefnt. Þær er hægt að nota í daglegu lífi við alls kyns kvillum eins og kvefi, fyrir svefninn, í baðið, í ferðalagið, í nálarstungur, nudd og margt margt fleira en olíurnar virka bæði andlega og líkamlega.

Án þess að við gerum okkur grein fyrir því þá hafa flest okkar upplifað hinn ótrúlega kraft sem ilmkjarnaolíur hafa. Þær eru nefnilega allt í kringum okkur. Prófaðu næst að finna ilminn af sítrónuberki og athugaðu hvort þú hressist ekki aðeins eða finndu lyktina af lavender búnti og gáðu hvort þú róist ekki aðeins. Gildi lavender olíunnar var uppgötvað fyrir slysni árið 1910 af Rene Gattefossé sem oft er nefndur faðir aromaþerapíunnar en hann brenndist illilega á rannsóknarstofu sinni því taldi sig vera að stinga hendi sinni í kalt vatn en stakk henni óvart í lavender olíu.

Mínar uppáhalds olíur eru frá fyrirtæki sem heitir Young Living en þær eru skilgreindar sem meðferðarolíur (therapeutic grade). Ástæðan fyrir því að ég vel þær olíur fram yfir aðrar er sú að eigandi Young Living, Gary Young, leggur mjög ríka áherslu á að farið sé eftir allra ströngustu reglum í framleiðsluferlinu til að varðveita hreinleika þeirra. Hann ferðast sjálfur um allan heim til að leita að ræktunarlandi með bestu skilyrðum hvað varðar loftslag, jarðveg og vöxt fyrir plönturnar sem Young Living notar í sínar ilmkjarnaolíur. Þannig hefur Young Living náð að þróa sitt svokallaða Seed to Seal ferli þar sem þeir hafa yfirsýn yfir alla þætti framleiðsluferlisins. Árið 1992 keypti Gary Young hreint ræktunarland í St. Maries í Idaho og þar hefur enn þann dag í dag ekki verið notað skordýraeitur né annar tilbúinn efnaáburður. Young Living er eina ameríska fyrirtækið sem á ræktunarland fyrir lavender og rósmarín í Provence í Frakklandi en það á einnig ræktunarlönd víðar t.d. í Ekvador, Óman og Perú.

 

Þrjár leiðir til að nota Young Living ilmkjarnaolíur:

  • Innöndun: þetta má gera með því að anda beint úr flöskunni, setja einn dropa í lófann og anda að sér eða nota svokallaðan ilmúðara. Það má einnig setja heitt vatn í skál og nokkra dropa út í vatnið, setja handklæði yfir höfuð og anda að sér.
  • Gegnum húð: þá má setja ilmkjarnaolíu beint á eitthvað ákveðið svæði sem þarf að meðhöndla en þó er mælt með því að þynna hana með annarri olíu sem gæti verið kókosolía eða ólífuolía. Það er líka hægt að setja þær út í bað eða nota í heita bakstra. Sumar geta verið ertandi fyrir húðina og þess vegna er gott að lesa leiðbeiningar vel.
  • Inntaka: margir nota kjarnaolíur í matargerð. Sumir setja valdar ilmkjarnaolíur í vatn og drekka eða setja í grænmetishylki og taka inn en þetta á aðeins við um 100% hreina ilmkjarnaolíu með gæðastimpilinn therapeutic grade.

VARÚÐ: Sumar kjarnaolíur eru heitar og því ætti að kynna sér notkun þeirra áður en þær eru notaðar beint á húð eða til inntöku.

Mínar uppáhalds ilmkjarnaolíur:

LAVENDER:

  • Mjög góð alhliðaolía og styrkir ónæmiskerfið.
  • Róandi, vöðvaslakandi, góð við spennu, kvíða og svefnleysi. Setja nokkra dropa undir iljar eða aftan á háls.
  • Mjög græðandi og góð á þurra húð og exem.
  • Frábær á flugnabit.
  • Góð við bíl- og sjóveiki.
  • Má setja beint á opið sár.
  • Góð við sólbruna og minniháttar bruna.
  • Róandi og góð fyrir svefninn. Það er sniðugt að setja nokkra dropa í lófann, strjúka yfir koddann og svo undir iljarnar.
  • Gott er að leyfa börnum að fá dropa í lófann og anda að sér fyrir svefninn.
  • Yndislegt að setja lavenderdropa í jógahandklæðið og njóta lavender ilms í gegnum jógatímann.
  • Setja lavenderdropa í blautan klút og í þurrkarann með þvottinum.
  • Bleyta bómull með nokkrum dropum og setja í skúffur og skápa.

LEMON:

  • Sótthreinsandi og bakteríudrepandi.
  • Örvar blóðstreymi, sniðugt að nudda nokkrum dropum eftir fótleggjunum.
  • Styrkir ónæmiskerfið.
  • Góð fyrir meltinguna. Setja 1-2 dropa út í vatn og drekka.
  • Mjög gott að byrja daginn á 5 dropum af lemon út í vatn (sítrónuvatn).
  • Má nota í matargerð.
  • Frábært að setja í tusku og þrífa ísskápinn eða setja dropa í uppþvottavélina.

PANAWAY:

  • Verkjaolía og góð við alls kyns sársauka, meiðslum og eymslum, tognunum og eftir högg.
  • Við höfuðverk er gott að nudda 1-2 dropum á enni og gangauga.
  • Góð við bakverk og verkjum í liðamótum.
  • Dregur úr spennu í vöðvum.
  • Við tíðaverkjum er gott að setja 3-4 dropa út í örlítið af annarri olíu eins og kókosolíu og bera á magann. Setja svo hitapoka eða heitan klút á magann.

PEACE AND CALMING:

  • Þetta er uppáhaldsolía barnanna minna og þau biðja um hana fyrir svefninn því hún hefur dásamleg áhrif og lyktar svo vel.
  • Dregur úr spennu, er mild og róandi blanda sem kyrrir hugann.
  • Góð í ilmúðara (kaldúðun).
  • Fyrir svefninn er gott að setja 1-2 dropa undir iljarnar, á axlir eða anda olíunni að sér úr lófanum, líka fyrir börnin.
  • Góð í baðið.
  • Góð fyrir óróleg, ofvirk börn og börn með ADHD.

VARÚÐ: Sítrusolíur eins og t.d. lemon og orange og blöndur með sítrusolíum eins og t.d. Peace and Calming geta gert húðina ljósnæma og því má ekki setja þær á húðina ef farið er í sól næstu 24-36 klst.

PEPPERMINT:

  • Verkjastillandi, bólgueyðandi og kælandi olía.
  • Gott að setja nokkra dropa í glerflösku og drekka yfir daginn eða á æfingu.
  • Mjög góð fyrir meltinguna, við ógleði, hausverk og bíl- og sjóveiki.
  • Við magaverk er gott að setja 1-2 dropa í lófann og nudda yfir magann.
  • Setja 1 dropa á enni, gagnauga eða aftan á háls til að draga úr spennu.
  • Setja 1 dropa út í te við meltingaróþægindum og brjóstsviða.
  • Góð við verkjum, þreytu í fótum og vöðvabólgu.
  • Olían virkar kælandi og hressandi og er t.d. góð í próflestri því hún getur aukið einbeitingu og orku.
  • Góð við kvefi. Bera 1-2 dropa á bringuna til að létta öndun.
  • Stillir matarlyst.
  • Má nota í matargerð og sniðugt er að setja olíuna út í kökusúkkulaði sem bragðast þá svolítið eins og After Eight. Hér er uppskrift þar sem ég notaði piparmyntudropa.

PURIFICATION:

  • Sótthreinsandi olía.
  • Eyðir lykt og er þess vegna góð í ilmúðara.
  • Gott að nota í þvottavélina, sérstaklega fyrir íþróttafatnað.
  • Frábær á flugnabit og kláða.
  • Góð í innöndun við stíflum í ennis- og kinnholum.
  • Gott að bera á háls við særindum í hálsi.

THIEVES:

  • Flensubani og galdraolía gegn bakteríum, flensum og sýkingum.
  • Gott að bera undir iljar og á háls sem forvörn gegn veikindum eða ef slappleika verður vart.
  • Gott að setja 1-2 dropa í volgt vatn við hálsbólgu.
  • Setja 4-5 dropa í uppþvottavélina til að sóttheinsa og eyða lykt.

Svona til gamans þá er nafnið Thieves tilkomið vegna goðsagnar um 15. aldar þjófagengi sem stundaði það að ræna lík, grafir og deyjandi fólk. Til að koma í veg fyrir smit nudduðu þeir á sig olíu sem var sótthreinsandi og bakteríudrepandi. Er þeir náðust að lokum urðu þeir að ljóstra upp leyndarmálinu um vernd sína gegn sýkingum.

VALOR:

  • Þykk olía sem inniheldur möndluolíu.
  • Gott að bera á úlnliði við kvíða.
  • Kölluð hugrekkisolía sem eykur kjark og þor.
  • Góð við hræðslu, eykur jarðtengingu og dregur úr kvíða.
  • Gott að bera á undir iljar.
  • Eykur sjálfsöryggi, sjálfstraust og orkuflæði.

Ég mæli með því að byrjendur fái ráð hjá fagaðila áður en þeir nota ilmkjarnaolíur því það er mikilvægt að læra grunnatriðin. Til að byrja með er öruggast að nota lítið og fikra sig áfram. Allar upplýsingar um Young Living olíurnar eru á einstakaroliur.is Þar eru reglulega haldin námskeið um virkni og notkun olíanna.

Sjá einnig ljómandi.is