Ferskt kál úr garðinum

kál úr garðinum
TEXTI Helga María Arnardóttir

Kínakál, grænkál, blómkál, svartkál, rauðkál, hvítkál og brokkolí. Það er afskaplega gefandi að rækta kál því að þetta eru drjúgar plöntur sem geta gefið mikið af sér. Ef þú ert kálæta er fátt dásamlegra en að fá kálið beint úr garðinum, ferskara en maður hefði getað ímyndað sér.

Kínakál og blómkál þurfa smá aðhlynningu í byrjun, svo það fari ekki í blómstra strax vegna ljósu nóttanna. Svona langar nætur hafa þau áhrif á kálið að það myndar ekki hausa en blómstar bara í staðinn. Til að koma í veg fyrir það þá þarf, fyrstu 4–6 vikurnar, annað hvort að hafa plönturnar við 20 °C eða myrkur 12 til 14 tíma á nóttunni sem er hægt að gera með ábreiðslu sem sett er yfir um kvöldmatarleitið.

Gott er að binda lausu bandi utan um kínakálið svo blöðin liggi þétt saman til að þau verði föl og girnileg. Annars verða þau mjög græn og með svolítið grófa áferð. Eftir því sem kínakálið vex þarf að víkka bandið svo það fari ekki að skerast inn í laufblöðin.

Þegar fyrstu brokkolí hausarnir myndast, þá þarf að skera þá af svo að myndist nýir í hliðarskotunum. Best er að uppskera kálið áður en plantan blómstrar.

Káltegundir
Spergilkál, grænkál og blómkál.

Ormar (grænar lirfur) eru vandamál þegar kemur að káli, sérstaklega brokkolí. Þeir hakka í sig laufblöðin, sérstaklega brokkolí.  Það er hægt að gera varúðarráðstafanir eins og að breiða dúk yfir plönturnar þegar þær eru ungar eða setja spjald niður við rótina í kringum stöngullinn. Þannig komast lirfurnar ekki að plöntunni. Dúkurinn virkar líka eins og gróðurhús svo plönturnar vaxa aðeins hraðar. Þegar plönturnar fara að mynda hausa þá er lirfuárásarhættan liðin hjá.

Ef svo illa vill til að lirfurnar eru komnar, þá er um að gera að tína þær, eina og eina í einu, af plöntunni þangað til þær eru horfnar. Þetta kallast vistvænar varnir. Í mínum huga er eitrun fyrir ormum eða flugum ekki möguleiki. Best er að sætta sig við það almennt séð, að náttúran gefur og tekur. Sum ár er meiri uppskera og önnur ár minni, af ýmsum ástæðum.

Ekki gefast upp þó eitt sumar sé lirfusumar! Allt er þetta ræktunarreynsla.

Ísland er kjörið land fyrir kálræktun þar sem jarðvegurinn er rakur og við þannig aðstæður þrífast kálplöntur best. Blómkál þolir t.d mjög illa þurrk. Grænkál og svartkál er tilvalið til ræktunar í köldu loftslagi því það þolir nokkuð frost og þess vegna er hægt að að næla sér í kál úr garðinum langt fram á veturinn. 

VILTU FORRÆKTA?

Kínakál spírar við 15 °
Brokkolí spírar við 12 til 15 °C
Blómkál spírar við 10 °C

Ef þú ert byrjandi þá mæli ég eindregið með því að kaupa tilbúnar kálplöntur í gróðarstöð.

Tögg úr greininni
, , , ,