Að útbúa mat frá grunni er bæði gefandi og skemmtilegt og við hjá Lifum betur – Í boði náttúrunnar viljum stuðla að aukinni þekkingu á einfaldri matargerð sem við getum öll átt við heima hjá okkur en fæstum dettur í hug að reyna. Með því að gera hlutina frá grunni vitum við nákvæmlega hvað við setjum ofan í okkur og sleppum við ýmisskonar aukaefni eins og bragð- og litarefni, svo að ekki sé minnst á rotvarnarefnin.
Majónes er frábær uppistaða í margar kaldar sósur, á brauðið og í okkar ástkæru kokteilsósu. Uppistaðan í majónesi er eggjarauður og olía og er það majónes í sínu einfaldasta formi. En gott er að bæta nokkrum bragðefnum við til að gera það enn bragðbetra.
1 athugasemd