Heimagerður andlitsmaski

VISSIR ÞÚ AÐ MAÍ ER MÁNUÐUR FEGURÐAR?

Rómverjarnir skírðu mánuðinn í höfuð á gyðjunni Maius (May) sem er einkum kennd við vöxt plantna og blóma og býður maí uppá fullkomið loftslag fyrir slíkt. Í tilefni af þessum “fegurðar” mánuði  langar mig að deila með þér æðislegum  heimagerðum  andlitsmaska úr aðeins fjórum innihaldsefnum til að draga fram þennan ljóma. Þetta er einn mýksti maski sem ég hef fundið og þvílík gjöf sem þú gefur húðinni! Tilfinningin þegar þú tekur hann af þér er dásamleg og andlitið virkilega ljómar eftirá.

DSC_8739

HEIMAGERÐUR DJÚPHREINSANDI ANDLITSMASKI

Í uppskriftinni er notuð klórella en einnig má nota spirulina eða þaraduft, sem bæði er talið að geta dregið úr bólgum í kringum augu og unnið gegn hrukkum. Hunangið hefur lengi verið notað í andlitsmaska og er bakteríudrepandi ásamt því að veita húðinni raka. Það er einnig talið gott fyrir þá sem fá reglulega bólur. Saman vinna þessi innihaldsefni að því að fjarlægja dauðar húðfrumur, eiturefni og óhreinindi sem auðveldar upptöku á næringarefnum og veitir raka inn í húðina.

2 tsk kókosmjólk feit
1/2 tsk klórella
1 tsk hunang
1 tsk sítrónusafi

Setjið kókosmjólkurdósina í kæli yfir nóttu eða frystið í 40-50 mín. Þetta þykkir hana og gefur enn þykkari andlitsmaska. Blandið öllu í saman í skál, berið á andlitið og leyfið að vera í eina klukkustund!  Á þessum tíma ætti maskinn að hafa stífnað. Skolið af með volgu vatni eða höfrum sem hafa verið lagðir í heitt vatn, þetta gefur húðinni örlítið meiri hreinsun. Húðin mun þakka þér og verður silkimjúk og ný. Mér finnst gott að enda á því að bera kókosolíu á andlitið.

FEGURÐAR FÆÐA

Fegurðin kemur sannarlega að innan frá, eins og fræga orðatiltækið segir “þú ert það sem þú borðar”.  Hér eru nokkrar fæðutegundir sem eru sagðar styðja við flekklausa húð og fallegan ljóma.

Húðin er okkar stærsta líffærið og vill afeitra sig náttúrulega.  Þessi fegurðarfæða er sérlega hreinsandi og getur því hjálpað til við það ná fram fallegum ljóma. Bólur, húðþurrkur og flekkir geta oft stafað af uppsöfnuðum bakteríum og gerjun í meltingarveginum, þetta getur síðan haft áhrif á húðina ef ekkert er gert í langan tíma.Ef það er eitthvað sem þú glímir getur hreinsun með mat rík af trefjum og andoxunarefnum verið einn áhrifaríkasta leiðin að fallegum ljóma og orku.