Heimildarmynd vikunnar er frá árinu 2007 og fjallar um róttæka arkitektinn og frumkvöðulinn Michael Reynolds sem notar það sem aðrir henda sem byggingarefni og vill með því sýna fram á sjálfbærari leiðir til lifnaðar. Hann lenti upp á kannt við marga í baráttu sinni en honum var lengst af bannað að stunda stunda iðju sína í Bandaríkjunum. Þetta er heimildarmynd sem kennir manni að gefast ekki upp á hugsjóninni, því að allt er mögulegt ef viljinn er fyrir hendi.
Njótið!