Jólin eru að nálgast og við hjá Í boði náttúrunnar ætlum að leita uppi hollar útgáfur af jólakonfekti og bakstri, eins og þessir marsípan molar. Þessi uppskrift frá Valdísi Sigurgeirsdóttur er einstaklega vænleg til vinnings:
Botn: 1 bolli möndlumjöl 2 msk hlynsíróp 1 msk kókosolía (fljótandi) 1/4 tsk möndludropar eða extrakt smá salt
Setjið bökunarpappír í form, ég notaði venjulegt jólakökuform.
Setjið kókosolíukrukkuna í heitt vatn svo olían verði fljótandi.
Blandið öllu sem er í botninum saman í skál, hrærið vel saman þar til verður að deigi og pressið slétt í botninn á forminu.
Blandið öllu sem er í kókosfyllingunni saman og hrærið vel. Setjið yfir botninn og sléttið.
Búið til súkkulaðið í skál, pískið smá til að fá fallega áferð á það og hellið yfir.
Setjið í frysti og tilbúið eftir 1-2 tíma.
Skerið í fallega bita og berið fram beint úr frysti, það er betra að bera þá fram kalda.
Þessir ótrúlega einföldu og meiriháttar góðu bitar komu alveg óóótrúlega á óvart. Þvílíkt nammi. Ég held ég sé búin að finna jólakonfektið mitt svo gott er þetta.