Kærleiksrík jól

Nú eru aðeins nokkrir dagar til jóla og allt á fullu í jólaundirbúningnum. Í stressinu i í kringum jólin þá gleymist það oft um hvað jólin snúast raunverulega. En þau eru hátíð ljóss og friðar en ekki hamborgarhryggs eða spjaldtölva eins og búðareigendur eru að reyna að telja okkur trú um.

Jólin hafa ekkert með það gera hver gefur flottustu jólagjafirnar, hver á hreinasta heimilið, hver er með besta matinn, hver er í dýrustu fötunum eða hver á stærsta jólatréð!
Því miður eru jól nútímans orðin mikið markaðsstæki þar sem fyrirtæki eru að keppast um að selja vörur sínar. Póstkassar okkar fylllast af auglýsingapésum og það er ekki hægt að kveikja á sjónvarpi eða útvarpi án þess að vera drekkt í auglýsum sem á að fá okkur til að versla meira.

Kúplum okkur útúr þessum markaðsvæddu jólum og njótum jólannna með vinum og ættingjum og gefum af okkur í formi ástar og kærleiks. Hamingja þessa heims verður ekki keypt með peningum þó auglýsingar séu að reyna að segja okkur annað.
Margir fá spurninguna “ertu búin að gera ALLT fyrir jólin?”. Það er verið að spyrja eins og jólin séu einhver kvöð sem maður á að kvíða!? Jólin eru ekkert til að kvíða, þetta er frábær gleðihátíð til að láta gott af sér leiða og vera hamingjusamur.

Ísland er ríkt land og eigum við flest vel í okkur og á. Við þurfum örugglega ekki nýjustu gerð af snjallsíma eða spjaldtölvu. Það sem við hins vegar þurfum að fá og gefa meira er kærleikurinn! Það vantar meiri kærleika í allt íslenskt samfélag og skín þetta vel í gegn í almennum umræðum í þjóðfélaginu og ekki síst í umræðum fulltrúa okkar á Alþingi Íslendinga.  Það er of mikið af biturleika og bölsýni í íslensku samfélagi. Við þurfum að fara að snúa þessu við og fara gefa meiri kærleik frá okkur.

Eini tilgangur þessarar jarðvistar er að vera hamingjusamur og það gerir maður með því að gefa kærleik og móttaka hann líka. Dauðir hlutir líkt og tölvur veita ekki hamingju og einlægur kærleikur er mun verðmætari en dýrustu hlutir heims.
Hér eru nokkrar hugmyndir að því hvað er hægt að gera til að gera þessi jól að þeim hamingjuríkustu sem þú hefur upplifað:

  • Faðmaðu alla sem þú þekkir og helst þá sem eru hvað mest tilbaka andlega, þeir þurfa faðmlagið líklega hvað mest.
  • Heimsæktu aldna ættingja og færðu þeim heimagert konfekt.
  • Láttu gott af þér leiða til góðgerðarsamtaka líkt og Mæðrastyrksnefndar eða Samhjálpar.
  • Berðu burðarpoka fyrir aldna konu út í bíl, gefðu stöðumælaverði eða afgreiðslufólki í búðum gott knús eða óvænta gullhamra.
  • Ef úti er mikill snjór,  farðu út vopnaður/uð skóflu og hjálpu öllum þeim sem eru með fasta bíla í skafli. Mokaðu einnig snjóinn úr innkeyrslu nágrannans.
  • Bjóddu einhverjum sem þú veist að er einn á jólunum í mat hjá þér.
  • Vertu ljúfasti bílstjórinn í umferðinni með því að veita öðrum forgang, hleypa fólki yfir gangbrautar, sýndu þolinmæði (það eru ekki allir jafn góðir bílstjórar og þú), í stað þess að vera með fýlusvip undir stýri á ljósum; veifaðu til náungans í næsta bíl og mundu að syngja jólalögin hástöfum undir stýri.
  • Bjóddu útigangsmanni í hádegisverð, gæti orðið skemmtilegt spjall og víkkað sjóndeildarhring þinn.

Hann er endalaus listinn af góðum verkum sem hægt er að gera um jólin. Þessi góðverk á maður að gera án þess að vænta nokkurs tilbaka. Því launin eru alveg ótrúlega mikil vellíðan og hamingjan sem þú munt upplifa. Það er í raun það besta við þessi góðverk að þau launa manni svo vel með því að sjá gleðisvipinn og góðvildina sem maður fær tilbaka.

Eigið gleðileg og kærleiksrík jól.

Skrifað af Geir Gunnari Markússyni, ritstjóra NLFÍ 

Skildu eftir svar

Netfang þitt verður ekki birt.