VILTU LIFA BETUR?
Hefur þú áhuga á að bæta lífsgæði þín og heilsu? Fræðast um umhverfismál og leggja þitt af mörkum?
Ef svo er, þá er þetta veisluhlaðborð fyrir þig.
„Hef oft farið á fyrirlestraraðir en þetta var í fyrsta sinn sem mér fannst allir fyrirlestrar áhugaverðir.“
„Ég var mjög ánægð, margt sem kom mér á óvart og þetta hristir upp í manni.“
Ummæli frá fyrirlestraveislu 2020
SÝNING – FYRIRLESTRAR – ÖRNÁMSKEIÐ
Sýning, fyrirlestrar og örnámskeið veita fjölbreyttan innblástur sem hjálpar gestum að taka skref í átt að grænni og heilbrigðari framtíð.
VÖRUSÝNING: Um 50 fjölbreitt fyrirtæki og stofnanir fræða gesti, kynna nýjungar á vörum, þjónustu, hugbúnaði, menntun, nýsköpun og fl. Fyrirtækin eiga það öll sameiginlegt að bjóða uppá umhverfisvænar og heilsueflandi vörur, þjónustu, menntun og lausnir.
FYRIRLESTRAR: Á laugardag og sunnudag stíga um 20 fyrirlesarar á svið og fjalla um heilsu og umhverfismál. Hvar viljum við vera eftir 30 ár? Hvað þurfum við að gera til að komast þangað? Streita, mataræði, plastlausar lausnir, heilbrigt heimili, 5 einföld ráð til að halda okkur í formi til áttrætt o.m.fl. verður tekið fyrir.
Hægt er að kaupa aðgang að fjögurra vikna endurspilun á fyrirlestraveislunni.
ÖRNÁMSKEIÐ: Fjölbreytt og fræðandi 30 mín. námskeið verða í boði fyrir gesti sýningarinnar.
MIÐAR TIL SÖLU Á TIX.IS:
Þriggja daga veislupassi = 5.500 kr.
Innifalið: Aðgangur að sýningu, fyrirlestrum og örnámskeiðum, föstudag, laugardag og sunnudag. Einnig bein vefútsending á fyrirlestrum auk aðgang að fjögurra vikna endurspilun allra fyrirlestra. >>>MÆLUM MEÐ
Hátíðarpassi = 12.000 kr.
Einungis 30 miðar í boði. Sama og veilsupassi + Forgangur á alla fyrirlestra yfir helgina.
Laugardagur = 3.900 kr.
Innifalið: Aðgangur að sýningu, fyrirlestrum og örnámskeiðum laugardag.
Sunnudagur = 3.900 kr.
Innifalið: Aðgangur að sýningu, fyrirlestrum og örnámskeiðum Sunnudag.
Bein vefútsending á fyrirlestrum = 5.500 kr.
Innifalið: Bein vefútsending á fyrirlestrum auk aðgang að fjögurra vikna endurspilun allra fyrirlestra.
OPNUNARTÍMAR
Föstudagur 7. okt.: 15.00 – 19.00
Laugardagur 8. okt.: 10.00 – 17.00
Sunnudagur 9. okt.: 10.00 – 17.00
Á vefsíðunni lifumbetur.is má finna nánari upplýsingar um sýnendur, fyrirlestra og örnámskeið.
Lifum betur er í samstarfi við Í boði náttúrunnar, Reykjavíkurborg, Terra og ON