Kristbjörg menntaði sig sem jógakennari í Kripalu Center í Bandaríkjunum en auk þess hefur hún hlotið fjölbreytta þjálfun á Indlandi í jógafræðunum. Undanfarin 5 ár hefur hún verið í víðfeðmu jóganámi undir handleiðslu Sri Swami Ashutosh Muni. Kristbjörg hefur kennt jóga í yfir 25 ár. Við fengum hana til að segja okkur frá sínum morgunvenjum:
Hvenær og hvernig vaknar þú á morgnanna?
Ég vakna um kl 6, fer strax framúr og fæ mér blómadropa í vatni. Fer svo oftast út að hlaupa í ca 10 mín. Ég elska að hlaupa úti í tunglskininu eða bara í stjörnubirtunni á veturna og svo þegar vorið vaknar þá er þetta besti tími dagsins. Ástunda svo jóga svona í ca 1.5 – 2 tíma (það er alskonar ástundun) og svo geri ég mér morgundrykkinn minn:
smá af kanil
ca 1 tsk af macca
rishidufti
spirulina
2 msk hrákakó
hálf tsk blómafrjókorn
einn banani
vatn sem flýtur yfir
Öllu hent í Vitamixerinn og blandað vel…..drukkið fram eftir morgni….
Hvernig eru morgunvenjurnar?
Einnig fæ ég mér 1 kaffibolla eftir morgunmatinn ef það er kaffi tímabil, stundum tek ég mér pásur frá kaffinu og drekk þá ekkert kaffi í nokkra mánuði, svo fer ég aftur í kaffið í nokkurn tíma….fer eftir hvaða tími ársins það er…..en kaffibollinn verður að vera með litlu kaffi og mikilli mjólk…ekki of þunnt eða of sterkt, þá bara sleppi ég því….ótrúleg sérviska þetta með kaffið en svona er það samt. Hollustudrykkurinn minn er hinsvegar ekkert sérlega góður á bragðið en það er í lagi, kaffið hinsvegar verður að vera eftir kúnstarinnar reglum….
Þegar ég ferðast þá reyni ég að halda alltaf í jóga ástundunina mína á morgnana, það er það mikilvægasta fyrir mig…..hitt má breytast eftir aðstæðum frekar….enda er hreyfing númer eitt undirstaða heilbrigðs líkama.