Omega 7, fyrir þá sem vilja viðhalda unglegri húð!

Hafþyrnir (Sea Buckthorn), líka kölluð omega 7, er planta svo rík af andoxunarefnum að um leið og menn gerðu sér grein fyrir næringarríku innihaldi hennar komst hún samstundis inn í “höll ofurfæðunnar”!

Næring Hafþyrnisins er óvenjuleg að því leyti að hún er ákaflega góð fyrir viðkvæma húð og viðheldur henni lengur hrukkulausri. Og ekki síst hentar hún þeim sem eru með viðkvæma slímhúð, ekki síst í leggöngum. Þótt “Sea Buckthorn” sé gjarnan að finna í vönduðum snyrtivörum má nú loks hana sem bætiefni til inntöku frá Natures Aid, aðeins í Systrasamlaginu. Því eins og margir vita nú þegar, fer ætíð best á því að fegurðin komi innan frá.

Því það er ekki nóg með að Hafþyrnirinn styrki húðina innan frá heldur er þetta magnaða bætiefni gott fyrir hjarta- og æðakerfi og meltinguna (gefur auga leið vegna slímhúðar). Yfirgripsmiklar vísindalegar rannsóknir hafa verið gerðar á Hafþyrninum. Þær hafa sýnt að hann hefur margskonar virkni, t.d. við að græða sár og endurbyggja slímhimnur og draga úr bólgum. Jafnframt hafa rannsóknir ítrekað sýnt að hann virkar vel gegn þurrki í leggöngum, en fyrir það eitt er Hafþyrnirinn þegar orðinn mjög þekktur. Umfram allt hafa vísindin þó sýnt fram á að Hafþyrnirinn er eitt besta húðbætiefnið sem til er. Það stafar líka af því hve hann frásogast fljótt og rakinn viðhelst lengi í húðinni. Þannig helst húðin lengur mjúk, teygjanleg og hrukkulaus. En þótt omega-7 fitusýran, telist ekki lífsnauðsynleg (ekki ennþá) bætir hún sannarlega lífsgæði fólks vegna þess að hún hefur djúpstæð áhrif á það hvernig við eldumst og getur jafnvel –og haldið ykkur fast – haft afturvirk áhrif á hrukkumyndum.

Örugg fyrir alla!

Hafþyrnirinn, sem er skínandi fallega appelsínugulur að lit þrífst best þar sem vetur er kaldur en sumrin snörp og heit. M.a. vex hann í fjallahéruðum Kína, Tíbets, Mongólíu og Rússands og er að auki ríkuleg uppspretta C- og E-vítamína. Náttúruöflin á þessum svæðum hafa mótað einstaka, kraftmikla og hrjúfa jurt. Til eru þúsundir uppskrifta þar sem ber Hafþyrnisins koma við sögu, hvort sem er til þess að bragðbæta mat eða bæta heilsuna. Þá eru lauf hennar notuð í te. Það segir líka margt að þar sem jurtin vex er algengt að fólk noti hana til þess að verjast sólinni, vindinum, þurrki og öðrum ágangi veðurs og umhverfis. Indverskir vísindamenn sem hafa gert rannsóknir með Hafþyrninn hafa líka komist að því að hið ríkulega andoxunarefnainnihald hennar verji og endurnýi lifrina.
Ennfremur inniheldur Hafþyrnir jurtasteróla, steinefni, karótenóíða og flavóníða. Eitt af því frábæra við Sea Buckthorn olíuna er að hún er örugg fyrir alla, sama hversu viðkvæma húð fólk hefur. Þessi forna nútímajurt er sannarlega ofurfæða því hún virkar í fullkomnu samræmi við líkamann og húðina. Þá hentar hann börnum ágætlega og rannsóknir hafa einnig sannað að hún dragi úr húðvandamálum á borð við psóríasis, exem, þurrk og siggróna og hrjúfa húð.

Hægir á öldrun í öllum skilingi!

Það hefur lengi verið vitað að samvirkni E- vítamíns og karótínoíða skapar öflugt andoxunarefni. Olían úr þessari jurt er því frábær, hvort sem innvortis eða útvortis, því hún afoxar og hægir á öldrun líkamans í öllum skilingi. Þá er þekkt að andoxunarefni minnka hættuna á ýmis konar krabbameinum og hjartasjúkdómum. Þegar oxun á sér stað glatar húðin meðal annars þéttleika sínum og tapar raka, en það eru fyrstu merkin um öldrun. Í kjölfar þess á húðin erfitt með að frásoga vökva og verjast ýmsum skaðlegum þáttum umhverfisins og þá hefst öldrunarferlið. Omega-7, eða Hafþyrnirinn (Sea Buckthorn), kann að geyma lausnina á þessu vandamáli.

Mynd af Hafþyrni: 

hafþyrnir

 

 

 

 

 

 

 


 

Skildu eftir svar

Netfang þitt verður ekki birt.