Það sem þú þarft að vita um spínat

Vissir þú að næringarinnihald spínats breytist eftir því hvernig það er meðhöndlað?

Mig langar að deila með þér nokkru sem getur hjálpað þér að finna út hvort þú ættir að borða spínat hrátt eða eldað.  Járnskortur er eitthvað sem getur verið algengur hjá okkur konum og er járn eitt af lykilvítamínum eftir fertugt. Járn styrkir blóðrásina og vinnur gegn þreytu og sleni.

Járn

Í flestum tilfellum stafar járnskortur af blóðmissi með tíðablóði. Stundum stafar járnskortur af meltingarsjúkdómum eða þá lélegs mataræðis. Einkenni járnskorts eru meðal annars slappleiki, þreyta, föl húð, særindi í munni, handa og fótakuldi, ör eða þungur hjartsláttur, andþyngsli og svimi.

Oxalsýra

Spínat inniheldur efni sem kallast á ensku, oxalic acid eða oxalsýra sem gerir það að verkum að það verður erfiðara fyrir líkamann að taka upp steinefni eins og kalk og járn. Að elda spínat getur gert járn aðgengilegra fyrir líkamann og þar með aukið járninnihald spínats.

Sjáum dæmi hér:

                  Hrátt spínat (1 bolli)   Eldað spínat (1 bolli)

Járn (mg)                     0.8                                6.5

Kalsíum (mg)               30                                245

Járn finnst einnig ríkulega í fæðutegundum eins og fiski, ávöxtum, appelsínum, appelsínusafa, mandarínum, jarðaberjum, grape, brokkolí, brussel sprouts, tómötum, tómatsafa, grænni og rauðri papríku, baunum, hnetum, aprikósum, sveskjum og rúsínum.

Með því að elda spínat, hvort sem það sé að gufusjóða, léttsteikja eða nota í pottrétt verða næringarefni eins og járn 24% aðgengilegri í samanburði við að borða hrátt spínat. Hins vegar er c-vítamín innihaldið meira í hráu spínati.

Það eru enn fleiri næringarefni heldur en c-vítamín og járn sem eru breytileg í næringargildi spínats eftir því hvort það er eldað eða ekki, en mér þótti þetta áhugavert að deila og eitthvað til umhugsunar. Svo ef þú vilt auka járnmagn veldu þá að elda spínat og ef þú vilt efla ónæmiskerfið neyttu þess frekar hrátt.

Spínat er dásamleg fæða rík af A vítamíni sem er mikilvægt fyrir sjónina, eðlilega slímhúð, virkt ónæmiskerfi, vöxt, frumuskiptingu og frjósemi, E vítamíni sem hindrar öldrun húðarinnar, örvar ónæmiskerfið, aðstoðar við súrefnisflutning og bætir blóðrásina, fólat (sem konum sem hyggja á barneignir t.d) og kalki sem er mikilvægt fyrir bein- og tannheilsu.

Heilsa og hamingja,

Júlía Heilsumarkþjálfi


Uppskriftabók Júlíu er nú á tilboði: Smelltu HÉR til að vita meira

Skildu eftir svar

Netfang þitt verður ekki birt.