Vistvænar leiðir til að losna við illgresi

Við tókum saman fimm eiturgóðar leiðir til að losna við illgresi á náttúrulegri hátt og komast hjá því að reyta arfa sýknt og heilagt. 

Þegar plöntur og blóm lifna við eftir vetrardvala þá vaknar líka vinur þeirra, illgresið. Sterk kemísk eiturefni drepa ekki einungis arfa og aðrar plöntur sem við kærum okkur ekki um, heldur eitrum við einnig fyrir mikilvægum lífverum sem í moldinni búa og rýrum þannig jarðveginn. 

1. VODKI

Nei, ekki fyrir þig; fyrir illgresið. Settu einn bolla af vodka á móti sex bollum af vatni í úðabrúsa og bættu svo við nokkrum dropum af uppþvottalegi. Blandan virkar stórvel, sérstaklega fyrir plöntur sem standa í beinu sólarljósi. Eftir nokkra tíma er illgresið þornað upp og orðið að engu. Passa þarf upp á að úða þessu ekki á viðkvæm blómin því blandan getur einnig þurrkað þau upp.

2. EDIK

Lykillinn að því að nota gamla góða edikið til að drepa illgresi er að hella því á nýsprottið illgresi sem er með óþroskaðar ræktur og viðkvæm blöð. Edikið virkar vel sem eitur og eftir nokkra daga verður arfinn brúnn og dauður.

3. HEITT VATN

Næst þegar þú hellir upp á te, er um að gera að rölta út með hraðsuðuketilinn og hella heitu vatninu yfir illgresið! Heita vatnið brennir arfann og hann deyr nokkrum tímum seinna.

4. DAGBLÖÐ

Teppi af dagblöðum stoppar sólarljósið og súrefni frá því að ná til jarðvegsins, kæfir illgresið sem er komið og varnar því að nýtt spretti upp. Settu tíu dagblaðsopnur saman og búðu til teppi úr nokkrum þannig bunkum. Bleyttu pappírinn til að halda þeim niðri og þektu svo blöðin með lagi af moltu. Ef illgresi vex í moltunni búðu þá til blaða-lasagna með því að setja fleiri dagblöð og annað lag af mold. Blöðin brotna svo á endanum niður.

5. SALT

Þú getur notað borðsaltið til að stoppa vöxt illgresis. Þú getur líka notað það til að stoppa vöxt við brúnir eða grindverk. Farðu þó varlega og ekki nota það í miðjan garðinn, því saltið getur skilið svæði eftir hrjóstrug. Saltið er því best til að nota á svæði þar sem ekkert á að vaxa!

Aðalmálið er þó að ná illgresinu snemma og passa að það nái ekki yfirráðum í garðinum. En ef það gerist er óþarfi að hafa áhyggjur því að arfinn er góður í salatið!