Ef þú ættir að bæta einhverju einu atriði við daglega rútínu til að bæta heilsu og vellíðan, þá myndum við mæla með því að það yrði hugleiðsla. Hún tekur aðeins nokkrar mínútur og þú getur iðkað hana hvar og hvenær sem er. Þú þarft ekki að fara neitt, né eiga einhvern ákveðin klæðnað. Hugleiðslan þín getur verið iðkuð NÚNA!
Sífellt fleiri hafa tekið upp hugleiðslu og allt frá pólitíkusum til afreksmanna og kvenna nýta sér hana til að ná lengra á sínu sviði. Vísindin sýna einnig fram á fleiri og fleiri niðurstöður sem styðja við það sem haldið hefur verið um gagnsemi hugleiðslunnar og fjölmargar rannsóknir hafa sýnt fram á jákvæð áhrif hennar á líkamlega jafnt sem andlega heilsu.
25 jákvæð áhrif sem regluleg iðkun á hugleiðslu getur haft á líkama og sál:
1. Sköpunarkrafturinn eykst
2. Kvíði minnkar
3. Ónæmiskerfið styrkist
4. Líkaminn verður basískari
5. Mildar einkenni breytingarskeiðs
6. Lækkar kólestról
7. Eykur blóðflæði í líkamanum
8. Slakar á vöðvaspennu
9. Kemur reglu á andardrátt
10. Minnkar höfuðverki og mígreni
11. Lækkar blóðþrýsting
12. Eykur orkustig
13. Bætir svefngæði
14. Vinnur á móti þunglyndi
15. Eykur heilavirkni
16. Minnkar ótta og fóbíur
17. Eykur athygli og fókus
18. Eykur sjálfstraust
19. Bætir minni
20. Minnkar fíknir
21. Eykur tilfinningalegt jafnvægi
22. Betra innsæi
23. Viljastyrkurinn eykst
24. Minni reiði og ofsi
25. Hjálpar þér að lifa í núinu
26. Vinnur gegn áfallastreituröskun
27. Eykur kynlífslöngun
28. Hjálpar þér að finna þinn tilgang
29. Heldur þér yngri!
30. Þú hugsar betur um þig
Nýttu þér fría viðburði FRIÐSÆLDAR Í FEBRÚAR til þess að koma reglulegri iðkun á hugleiðslu inn í þitt líf! Ekki missa af hóphugleiðslu í Ráðhúsinu á morgun kl 11:00!
Byggt á grein af mindbodygreen