Nú er komið að því!
Hugleiðsluvikan Friðsæld í febrúar byrjar með „látum“ á hóphugleiðslu kl 11:00 á Sunnudaginn í Ráðhúsinu. Við hvetjum alla til þess að mæta, unga sem aldna og skapa með okkur góða og jákvæða stemmingu. Í framhaldinu er fjölbreytt og spennandi dagskrá út vikuna og verða viðburðirnir haldnir víðs vegar um höfuðborgarsvæðið. FRÍTT er á alla viðburðina og ekki nauðsynlegt að skrá sig, bara að mæta!
Smelltu á PDF FRIDSEALD til að ná í prentanlega útgáfu af dagskránni, en allar nánari upplýsingar um viðburði (staðsetningar og fl.) er að finna á ibn.is/vidburdir