Með augum ljósmyndarans
Anna Kristín Þorsteinsdóttir er skapandi kona og náttúrubarn eins og þau gerast best. Hún rammar inn náttúru Íslands á einstakan hátt og tekur eftir smáatriðum og áferðum sem þar er að finna.
–
„Ég eignaðist mína fyrstu ljósmyndavél 15 ára gömul en það var filmuvél, Pentax P30n. heilan vetur tók ég svart hvítar myndir af hundinum mínum og skóginum í Noregi og framkallaði þær í kjallaranum heima. Mér fannst það töfrum líkast að sjá myndirnar birtast hægt og rólega ofan í framköllunar vökvanum. Seinna meir sótti ég nokkur ljósmynda námskeið og eftir að ég varð fullorðin tók ég ljósmyndakúrs hjá Þórdísi Erlu Ágústsdóttur í Listaháskóla Íslands. Það sem heillar mig við myndefnið eru ákveðnar áferðir og munstur sem birtast í nærmyndum af náttúru.“
–
Myndirnar eru teknar á Leica D-Lux 5 myndavél
Anna Kristín býr einnig til magnaðar klippimyndir sem hægt er að skoða og kaupa HÉR