Kryddjurtir og villtar jurtir til þurrkunar

Nú eru síðustu forvörð til þess að tína og þurrka kryddjurtir og aðrar jurtir til vetrarins. Flestar kryddjurtirnar í garðinum eru vel sprottnar, orðnar stórar og gróskumiklar. Þess vegna er um að gera að nota tækifærið og tína þær til þurrkunar og hafa þannig nóg til af þeim í vetur. Gott er að drífa í þessu áður en kuldinn, frostið og snjórinn kemur og þær sölna. Kryddplönturnar er hægt að nota í ýmislegt svo sem te, krydd og sem einstaklega fallegt skraut. Skessujurt til að nota í kjötsúpuna, mynta og fennel í teið, salvía í ýmis konar matreiðlsu og timíanið er líka tilvalið að þurrka. Dillfræin eru notuð í kryddlög og það sama gildir um koríanderfræin. Þar fyrir utan eru margar villtar íslenskar jurtir hentugar að tína núna í te og fleira. T.d mjarðurt, maríustakkur og vallhumall sem eru frábærar tejurtir og ekki má gleyma fjallagrösunum!

Þurrkun og tínsla jurta

En hvernig eru jurtir þurrkaðar? Byrjaðu á að klippa eða handtínda jurtirnar. Það fer svolítið eftir því hvaða plöntu þú ert að eiga við hvor aðferðin er betri. Þær sem eru með mjúkari stöngul er hægt að handtína en plöntur með trékenndari stöngul eru klipptar. Best er að gera þetta í þurrviðri vegna þess að þá er auðveldast og mestu líkurnar á að vel takist til með þurrkunina. Plönturnar ætti annað hvort að tína ofan í taupoka eða í vendi. Ef tíndar eru villtar jurtir þarf að þekkja þær og alls ekki að tína allt upp til agna af svæðinu því gaman gæti verið að koma til baka að ári og endutaka skemmtunina. Athugið að tína aldrei þar sem mengunarvaldar eru nálægir t.d. nálægt umferð og iðnaði. Fjallagrösin er þó betra og þægilegra að týna þegar þau eru blaut því þá losna þau svo skemmtilega frá mosanum. Þegar heim er komið er best að setja pokana á þurran og hlýjan stað þar sem getur loftað um þá og þess vegna mega þeir heldur ekki vera pakkfullir. Það er líka hægt að breiða úr plöntunum á hreint handklæði eða viskustykki í um það bil 2-3 vikur. Þá getur þú verið örugg/ur um að þær séu þornaðar. Þegar afurðirnar eru orðnar skrjáf þurrar þannig að þær molna í hendinni á þér er hægt að setja þær í glerkrukkur eða tepoka til geymslu fyrir veturinn. Jurtir þurrkaðar í vöndum eða búntum taka aðeins lengri tíma að þorna, sérstaklega ef þær hafa þykk laufblöð, en búntin koma einstaklega vel út.

Í teblöndurnar er líka gott að setja kryddjurtir eins og kanil, kamillu og engifer.

Tilvalin teblanda

50 g maríustakkur

50 g mjaðururt

50 g mynta

100 g fenell

Öllu blandað vel saman mulið i morteli og sett í glerkrukkur og geymt á dimmum stað eða strax búin til rjúkandi og ilmandi te bolli.