FÆÐA / FOOD 2018

Sérritið okkar árlega FÆÐA/FOOD 2018 er komið út en það er eins og áður sneisafullt af umfjöllunum um íslenska matarmenningu í víðu og frumlegu samhengi. Þetta er í þriðja skiptið sem FÆÐA/FOOD kemur út en það er bæði á íslensku og ensku.

Þetta er blað fyrir þá sem vilja kafa aðeins dýpra þegar kemur að mat og matarmenningu. Þá sem hafa gaman að því að lesa um samband fólks við mat og læra eitthvað nýtt, fyrir þá sem kunna að meta sjónrænan innblástur og þá sem vilja fylgjast með nýjungum.

Gestaritstjóri að þessu sinni er Rakel Halldórsdóttir, ráðgjafi hjá Matís og stofnandi og fyrrverandi eigandi bændamarkaðarins Frú Laugu.

Efnistök ritsins eru fjölbreytt en sjálfbærni í kringum mat og matarmenningu er það sem Rakel leggur sérstaka áherslu á.

Blaðið inniheldur m.a.:

  • viðtal við kokkinn Rúnar Marvinsson
  • umfjöllun um íslensk fjallagrös
  • viðtal við eigendur elstu veitingastaða Reykjavíkur
  • umfjöllun um íslensku pylsuna
  • viðtal við 101 árs Íslending um hennar matarvenjur í gegnum árin
  • og listrænt samstarf ljósmyndarans Sögu Sigurðardóttur og kokksins Kjartans Óla Guðmundssonar, en forsíðumyndin að þessu sinni kemur úr því samstarfi.

 

Þá er sérstakur kaffikafli þar sem má m.a. sjá umfjöllun um íslenska kaffimenningu hér áður fyrr, hvernig best sé að spá í bolla, örnámskeið í froðugerð og viðtal við kaffigúrúinn Sonju Björk Grant.

Í tilefni þessarar þriðju útgáfu af FÆÐA/FOOD hefur jafnframt verið sett í vinnslu sérstök vefsíða fyrir blaðið, www.icelandicfood.is

 

———————————————–

ÁSKRIFTARTILBOÐ TIL 1.DES. : 2 BLÖÐ FRÍTT MEÐ

Komdu í áskrif og fáðu blaðið á 1.970 kr (í stað 2.800 kr.). Auk þess færðu tvö eldri FÆÐA/FOOD frítt meðTilboðið gildir til 1. desember. SKRÁ ÁSKRIFT HÉR

———————————————

SKOÐA SÝNISHORN HÉR