Lifandi kransar eru fallegt skraut sem ilmar vel og notalegt er að hafa í kringum sig. Þeir brotna hratt niður og umbreytast í næringu fyrir gróðurinn í garðinum þegar veturinn hefur hvatt okkur. Ekkert plast, fyrirferðarmiklar umbúðir eða mengandi efni hér á ferð.
HRÁEFNI
Furugreinar
Þinur
Einir
Reynir
Sortulyng
Eski
Mosi
Könglar (fura, lerki, greni)
TÓL OG TÆKI
Góðar greinaklippur
Hálmkrans (eða búa til eigin krans úr t.d. birkigreinum)
Bindivír á kefli
Vírklippur
Límbyssa (notuð við könglakransa)
GÓÐ RÁÐ
Safnið saman efniviði þannig að það sjái ekki á náttúrunni.
Klippið hóflega af plöntunum (mest 10%).
Nýtið efni úr eigin garði eða nærumhverfi og leikið ykkur með ólíkan efnivið.
Munið eftir að gera lykkju aftan á kransinn úr tvöföldum vír.
Könglakransa má nota ár eftir ár. Gott er að geyma þá í poka og setja í geymslu til næstu jóla.
Ef kransinn er hafður innandyra er gott að úða hann með vatni til að halda honum ferskum.
Grenigreinar henta ekki til skreytinga innandyra því að nálarnar hrynja af þegar grenið þornar. Henta betur utandyra.