TEXTI Jón Þórir Guðmundsson
Að umpotta pottaplöntum er eitthvað sem þarf að gera á tveggja til þriggja ára fresti. Þetta er þónokkuð breytilegt því sumar plöntur eru nægjusamari en aðrar, þetta er því alltaf matsatriði hverju sinni. Einnig þarf að muna að umpotta plöntum sem eru í útirækt eða í gróðurhúsinu en margir rækta runna og fjölær blóm í pottum utandyra.
En hvernig á að meta þörfina? Lítill vöxtur, smáblöð og gulleit blöð eru glögg dæmi um að umpottun sé æskileg. Það sama á við ef rótarklumpur er orðinn þéttur og vöxtur almennt kyrkingslegur. Stundum er hægt að skipta aðeins um efsta moldarlagið eða um 3–5 cm og setja ferska og áburðarríka mold efst í pottinn.
Best er að vökva plöntuna nokkrum klukkutímum fyrir umpottun. Síðan þarf að velja góðan pott sem er um 2–4 cm stærri en sá gamli. Ef potturinn, sem á að umpotta í, er notaður þarf að þrífa hann vel með heitu vatni áður. Slíkt á alltaf að gera þegar pottar og sáðbakkar eru endurnýttir til þess að koma í veg fyrir sýkingar og hugsanleg meindýr.
Því næst er góð pottamold valin, sem hentar fyrir almenna ræktun en sumar plöntur kjósa sérstaka mold ef hún stendur til boða, sem dæmi vilja kaktusar auka sand eða vikur út í moldina og bláberjarunnar og lyngrósir súra mold.
Það er best að hvolfa plöntunum til þess að ná þeim úr pottinum og síðan má gjarnan greiða aðeins úr rótarflækjunni og grisja ræturnar ef þær eru langar og flæktar. Síðan er plöntunni komið fyrir í nýja pottinum, að moldin sé um 2 cm fyrir neðan barminn á pottinum en það auðveldar alla vökvun á plöntunni síðar.
Þegar plantan er komin í nýja pottinn og moldin hefur verið þjöppuð rólega þarf að vökva vel og koma henni fyrir á framtíðarvaxtarstað. Grunnáburðurinn í moldinni endist í um 3–4 vikur en þá má fara að gefa áburð á eins til tveggja vikna fresti eða oftar eftir styrk blöndunnar og hvernig plöntu við erum með. Eftir tvær vikur ætti plantan að hafa fest sig vel í nýju moldinni og njóta nýja pottsins og næringarríku moldarinnar.
Fyrir áhugasama pottaræktendur mælum við með 10 góðum ráðum um ræktun í pottum.
Garðyrkjufræðingurinn Jón Þórir Guðmundsson frá Akranesi er þekkt persóna í heimi garðyrkju og ræktunar. Hann er einn af þeim sem láta ekkert óreynt þegar kemur að ræktun, séu það matjurtir, blóm eða eplatré.
Fleiri greinar eftir Jón Þórir Guðmundsson:
Fjölgun með vetrargræðlingum
Ræktun á hvítlauk
Radísur og hreðkur