María Hólm
María er jógakennari hjá Sólum, jóga og heilsusetri. Hún er einnig með Diplóma í Alþjóðasamskiptum og BA í ensku. Hún útskrifaðist sem jógakennari, í júlí 2012 frá Jimmy Barkan, stofnanda The Barkan Method of Hot Yoga. Í október 2012 lauk hún svo réttindum til að kenna Level II/III Hot Vinyasa, hjá Jimmy Barkan. Sumarið 2014 tók hún kennsluréttindi hjá Maty Ezraty í YogaWorks. Kennaranámið hjá Maty er bræðingur af Ashtanga og Iyengar. Hún kenndi bæði Heitt og hefðbundið jóga hjá World Class frá ágúst 2012 til mars 2015 en hóf svo störf hjá Sólum, jóga og heilsusetri, Fiskislóð, Granda í apríl 2015.