Að taka hvítlaukinn upp
Þegar líða tekur á sumarið fara blöðin að þorna á endunum og lafa niður. Þá er kominn tíma til að taka hvítlaukinn upp. Ef laufblöðin eru búin að vera gul og lafandi í viku eða meira er orðið nokkuð ljóst að hvítlaukurinn vex ekki mikið meira. Það er oftast í júlí eða ágúst. Hvítlaukurinn er þá grafinn varlega upp. Þetta er eftirvæntingarfull stund eins allar stundir þegar maður grefur upp grænmeti. Þegar búið er að taka hvítlaukinn upp er mikilvægt að þurrka hann vel, og dusta af mestu moldina. Hann þarf að vera alveg þornaður áður en hann fer inn í ísskáp því annars rotnar hann. Það er gott að geyma hann á þurrum, dimmum stað. Annar möguleiki er að flétta saman stönglana og búa þannig til hvítlauksknippi og þurrka hann þannig.
Forskot á sæluna
Á vaxtartímanum er hægt að klippa aðeins af grænu laufblöðunum og nota í mat. Það er milt hvítlauksbragð af þeim. Ég hef stundum tekið forskort á sæluna og tekið upp einn og einn lítinn hvítlauk um vorið eða snemmsumars. Hvítlaukur vex best á sólríkum stað og þarf áburð til að vaxa vel. Ég hef í mörg ár sett niður hvítlauksrif sem ég hef keypt úti í búð sem hefur virkað vel í hvert skipti. Ég hef þó heyrt að það geti gerst að búðar hvítlaukur spíri ekki, þess vegna bendi ég líka á að hægt er að kaupa hvítlauk í gróðrastöðvunum.
Að lokum vil ég mæla með einni frábærri aðferð við að elda og borða hvítlauk. Það er að grilla eða baka í ofni heila hvítlauka með hýðinu, og smyrja svo innhaldinu ofan á brauð, kannski með smá olíu, smjöri eða kryddjurtum. Mmm!