Sveppir og ljósmyndun

sveppaljósmyndun
TEXTI Margrét Rósa Jochumsdóttir
MYNDIR Svanhildur Egilsdóttir

Sveppir og ljósmyndun

Svanhildur Egilsdóttir, líffræðingur og líffræðiljósmyndari, starfar sem ljósmyndari hjá Hafrannsóknastofnun, þar sem hún myndar hin ýmsu sjávardýr. Hún hefur mikinn áhuga á sveppatínslu og hafa sveppir gjarnan orðið að ljósmyndaefni hjá Svanhildi, sem annars ljósmyndar bæði dýr og plöntur í frístundum sínum. Svanhildur segir tæknina og tækin vera aðalatriðið þegar kemur að því að taka góðar líffræðiljósmyndir. Sem dæmi stillir hún sveppunum upp í þessari myndaseríu útivið þegar ekki er mikil sól, hefur lokunarhraðann mjög mikinn og notar flass til þess að ná fram svarta bakgrunninum sem gefa myndunum þessa einstöku dýpt.

Tögg úr greininni
, ,